Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Side 50
50
un mælir það auk annars, að jarðhitinn ekki fer jafnt vaxandi
inn á við, sem hlyti að vera, ef svo væri, til dæmis eins og
hitinn eykst, því nær sem dregur loganum; þar á móti fer hitinn
vaxandi til vissrar dýptar, en eykst úr því ekki að sama skapi
og innar dregur, og er þetta einmitt sönnun fyrir hinni skoð-
uninni, sem lætur jarðhitann orsakast af efnabreytingum í sjálfri
jarðskorpunni. þ>að þykir og líklegt að hiti sá, er hér ræðir
um, geti myndast við jarðföll (Sænkninger) af núningi þeim og
þrýstingi, sem þau gjöra til hliðanna og niður fyrir sig; en þá
verður opt jarðskjálfti, sem tíðast er fyrirrennari eldgosa; gosið
sjálft getur og orsakað jarðskjálfta, þegar það er að byrja, en
ekki er það ætíð að það fylgist að; seinasta Heklugosi 1845
fylgdi enginn jarðskjálfti.
Ritað í júníinánuði 1878.