Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 23
25
örfoka auðn. Þar fundust í september síðastliðnum 2 fornlegir gripir
úr járni; var annar hnífsblað með tanga, er rekinn hafði verið upp
i skaft, en skaftið auðvitað fúið af; hinn var flatt járn með tanga,
sem og mun hafa verið rekinn upp í skaft, og eru 2 allskarpar
beygjur á; má vera að þetta hafi verið pottskafi1).
Nokkru fyrir norðan Helgastaði fellur Sandmúladalsá í Skjálf-
andafljót austanmegin; dregur hún nafn af dal þeim er hún rennur
eftir, en dalur sá hefir nafn sitt af múla þeim, sem er á milli fljóts-
ins og árinnar; verður þar langt og mjótt nes milli þessara vatns-
falla. I þessu nesi, norðan í múlanum, er forn bæjarrúst örblásin
og vottar lítt fyrir veggjum, enda er þar sandur mikill. D. Bruun
hefir ekki orðið áskynja um þessa rúst, og engin munnmæli eru til
um það, hvað sá bær hefir heitið, er hér hefir staðið. Eru líkur til
að hann hafi heitið í Sandmúla. Hinumegin við Sandmúladalsá
blasir við Hafursstaðahlíð og hefir bærinn Hafursstaðir staðið þar
(sbr. ritg. Bruuns); fram með fljótinu, undir hlíðinni heita Hafurs-
staðaeyrar.
Um það hefir gangnamönnum o. fl. verið kunnugt lengi, að
sraágripir ýmsir fyndust í rústunum í Sandmúla. Haustið 1908 tíndi
einn af gangnamönnum ýmsa gripi úr rústunum og hafði með sér.
Maður þessi er nemandi í mentaskólanum, Erlendur Þórðarson að
nafni, frá Svartárkoti. Sýndi hann mér gripi þessa 25. júní síðastl.
og keypti Forngripasafnið þá. Voru gripir þessir vefjarskeið úr
hvalbeini, orðin mjög gölluð, um 42 sm. (16") að lengd, en má vel
hafa verið alt að því helmingi lengri; steinbolli (»blótbolli«) eða
bollasteinn, flatkúlumyndaður og lítið eitt (2 sm.) lengri á annan
veginn, þ. 7 sm., 1. 14,5 sm., br. 12,5 sm. Bollinn er í miðju á
annari (breiðu) hliðinni og er að þvermáli efst 5,5—6 sm., nær því
hálfkúlu-skálmyndaður; lítið skarð er á barminum á einum stað.
Dýpt bollans er 2 sm. í miðju. Þetta er að minni ætlan vafalaust
forn steinlampi2). — Ennfremur hnífblað með mjóum tanga aftur úr;
litill öngull úr járni, járnnagli (1. 7 sm.), 2 greiðubrot úr beini, brot
af snúð úr rauðum steini, brot af rafperlu, blá glerperla, hvít bein-
perla, grár steinn, fremur linur, flatur annars vegar en kúptur hins
vegar, sporbaugsmyndaður og er gróp í röndina umhverfis ;* *vera má
að hann hafi verið kúptur beggja vegna, þá er hann var smíðaður,
og hafi flagnað af honum annars vegar, kann hann þá að hafa verið
sökkusteinn (sakka) á silungadorg.
') Nokkuð áþekt nr. 413 í 0. Rygh, Norske Oldsager Chria 1885.
*) Shr. Árb. ’08, hls. 39-40.
4