Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Side 31
33
ups, en það varð 23. des. 1193. Ennfremur segir sagan að þá er
Jón kom til Keldna tók hann bráðlega sótt þá er leiddi hann til
bana, en Jón Loftsson andaðist 1. nóv. 1197 eða nær 4 árum síðar
en Þorlákur byskup. Klaustrið heflr því getað verið búið að standa,
að minsta kosti 4—5 ár þá er Jón féll frá. Nú segir ennfremur að
Sæmundur sonur hans hafi látið »bæta fyrnd kirkjunnar og húsanna*
(þ. e. klausturhúsanna) um sína daga, en Sæmundur lifði föður sinn
fjórðung aldar og dó 7. nóv. 1222. — «En at honum liðnum skiftu
synir hans kirkjunni og húsunum ofanteknum.« Klaustrið má þá
hafa staðið um 30 ár. En þótt sagan geti ekki um príór eða munka
á Keldum, má því samt nærri geta að Páll sonur Jóns, sem einmitt
varð byskup eftir Þoriák móðurbróður sinn, muni ekki hafa látið
klaustur föður síns leggjast niður eða standa autt um sína daga.
Slíkt hefði ekki verið eftir rausn og stórmensku Páls byskups. En
hann féll frá 29. nóv. 1211. Og til hvers skyldi Sæmundur hafa
haldið við klausturhúsunum, ef hann heflr látið þau veraauð? Nærri
má og geta að lítt hefði honum þótt sér það sæma, »er þá var göf-
ugastur maður á öllu íslandi«.
Fyrir ofan bæinn á Keldum fanst fyrir mörgum árum fornt inn-
sigli, er selt var Forngripasafninu 27. júní 1891, og er nú nr. 3558 í
safninu. Innsigli þetta er úr kopar, signetsflöturinn sporbaugsmynd-
aður, stendur upp og ofan, og er oddmjór í báða enda, svo sem
títt var á innsiglum á 12. og 13. öld. Lengd hans eða hæð er 32
sm., en br. 2 sm. Á miðju er mynd Maríu með sveininn Jesú á
hægra armi sér, en umhverfis myndina stendur með fornu munka-
letri: X SIG : SVEINONIS : PRI: PAL þ. e. Sigillum Sveinonis pri-
oris Pali (filii), innsigli Sveins priors Pálssonar. Þessa Sveins príors
Pálssonar finst hvegi getið svo kunnugt sé. Virðist það nær óygg-
jandi að hann hafi verið príor Keldnaklausturs og ef til vill hinn eini
prior, er þar hefir verið.
Matthías Þórðarson.
5