Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Qupperneq 36
38
þessi grein oftast í 56. kap. sem er einmitt hið eðlilegasta eftir efn-
inu. Samt sem áður er hún í flestum eldri og yngri bibliuútgáfum
(og víst handritum af Jesaja) látin standa fremst i 57. kap. — Eins
og alkunnugt er, virðist kapitulaskifting í bibliuritunum fara eftir
öðru en efni og innihaldi. — Ekki er þessi ritningargrein tekin, eins
og hún hljóðar hér, eftir Guðbrandar (né Þorláks) biblíu og ekki er
hún heldur samskonar að útleggingu til hvað efnið áhrærir.1)
Áletrunin hljóðar í heild sinni þannig:
Hér hvíler sú fróma Tevinna Guðrún Aradótter; i guðe sofnuð d
58. dre sins alldfurs] 1644, þann 19. odfobris].
Réttldter fara frá ógjœfu til friðar, og hvíla sig í sínum svefn-
húsum. Esa[ias] 56.
Legsteinn á Gufunesi.
Haugni Sugurðsson f 1671.
Legsteini þessum er lýst nokkuð í Árbók ’97, bls. 40, og tilfærð
áletrun á honum af núv. byskupi, herra Þórh. Bjarnarsyni; er því
óþarft að rita langt mál um hann hér og það þvi síðui, þar sem á-
letranin er svo að segja hárrétt tilfærð. Viðvíkjandi henni skal eg
aðeins geta þess að ekki er nein »komma« eða broddur yfir stafnum
A aftast í 12. 1., heldur er lítil sjálfgerð hola i steininn hægra megin
viðAofan til. — H og V aftast í 1. 1. eru bundin saman, þannigað
aftari leggurinn í H er um leið fremri leggurinn í V. — Stafurinn
Æ í 5. og 9. 1. er eins og t. d. í 3. 1. á Garðast nr 6 (Árb ’06, 43).
Steinn þessi er að öllu leyti hinn vandaðasti og veglegasti al-
islenzkra legsteina, sem eg þekki til frá fyrri tíð. Efnið er grágrýti.
Mér hefir mælst lengd hans 15772 sm., br. 74 sm. og þykt um 17
sm. Steinninn er aliur einkar slétt og vel höggvinn og letrið einkar
skýrt, latínuleturs upphafsstafir, svipaðir að gerð þeim, sem áletrun-
in er prentuð með í Árb ’97; stafhæð 5—6 sm., nema i neðstu lín-
unni allri 4 sm. Fyrir ofan letrið er andlitsmynd og fyrir neðan
það sést á mannsfætur, sem standa á tveim jafnhliða bogabútum;
sbr. Garðast. nr. 2 (Árb. ’04, 38). Beggja vegna við mannsandlitið
og sömul. beggja vegna við fæturna eru tveir sívafningar. Fyrir
ofan andlitið er ennfremur bló.n með sexblöðum og tveir sivafning-
hvoru megin. í hornunum eru englamyndir með útbreiddum væng
juro. Bekkur er utan um. Allra yzt í efri hornunum eru enntveir
‘) í nýjustn isl. þýðingunni (1902 og 1908) er þetta lagt svo út: „— vegna spill-
ingarinnar er hinum réttlátu burt svift, þeir ganga inn til friðar; þeir munu hvila i
legurúmum sinum (sem ganga beina hraut). 1