Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Qupperneq 38
Smávegis.
Um nokkra staði og fornmenjar,
er höf. athugaði á skrásetningarferð um Borgarfjarðar- og Mýrasýslu
i júlímánuði 1909.
>
A Lundi í Lundarreykjadal hefir verið bent á fornar tóftir, kall-
aðar »hofið«. Kálund getur þeirra í bók sinni Isl. Beskr. I. bls 311
og Sigurður Vigfússon rannsakaði þær 6. sept. 1884. Skýrir hann frá
rannsókn þessari með mynd í Árb. '84—85. Hinar umræddu tóftir vor
3, bygðar saman, í rauninni einbygging: hof með afhýsum. Hvorugur
getur þess, að rétt hjá, þarna uppi á brekkunni og innan hins forna
túngarðs, eru enn fleiri fornar tóftir. Rétt fyrir norðaustan (land-
norðan) hoftóftina er önnur tóft minni, um 8 m. að lengd út á ytri
veggbrúnir, og fyrir austan þá tóft er önnur tóft afar-löng, bersýni-
lega forn bæjartóft með hinu elzta lagi. Hún er um 27 m. að lengd
og 7 m. að breidd. Skiftist hún í 4 »hús« og er eitt nokkru breið-
ara að sjá en aðaltóftin yfirleitt. Hér hefir hinn fyrsti bær verið bygð-
ur að Lundi. Hér er fagurt og víðsýnt um dalinn og er eðlilegt að
sá er valdi sér bæjarstæði að Lundi, bygði hér uppi. En svo komu
rokin og byljirnir og þá þótti einhverjum hentugra að byggja i skjóli
undir brekkunni, og þar stendur bærinn — og kirkjan nú. En uppi
er hinn heiðni fornbær — og hofið.
I Bæ byggði Björn bóndi Þorsteinsson í sumar mikið og vand-
að hús. Þegar grafið var niður fyrir kjallara og undirstöður varð
fyrir veggjahleðsla mikil á 3 álna dýpi; stóðu þar undir-
stöður á móhellu. Litlu ofar varð vart gólfskánar og hér
fundust og allmargir tigulsteinar gulir að lit, fremur þunnir,
en að öðru leyti svipaðir nútíma tigulsteinum að stærð. Frá
því 1896 er »normal«-stærð venjulegra tigulsteina íDanmörku: 1.23
sm., br. 11 sm. og þ. 5,5 sm.; steinarnir í Bæ voru: 1. 25 sm., br. 11,3
sm. og þ. 4 sm. — Því miður höfðu flestir steinarnir verið notaðir
aftur í hina nýju byggingu. Steinarnir virtust vera úr fremur »mögr-
um« leir og naumast meira steiktir en »hálfsteiktir« á við það sem
tigulsteinar gerast nú. Þessir steinar munu vera frá fyrstu tímum