Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Page 44

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Page 44
46 og ekki lagðir gripir, matvæli né þess háttar í kristinna manna dysjar eða grafir. Þessar 2 grafir, sem hér er um að ræða, munu hafa verið rnjög grunnar, að eins 1—1^2 fet, steinn látinn við höfuð- endann, smáhellur lagðar i flór í grafarbotninn 0g líkið þar ofan á, sjálfsagt með umbúðum utan um eða í fötunum, og yfir virðist svo hafa verið lögð stór hella. Síðan mokað ofan i aftur og hrúgað upp mold og steinum ofan á. — Þessar 2 dysjar hafa lengi verið upp blásnar og líklega margbúið að róta við þeim, svo nú sást hið upp- runalega lag þeirra ekki svo vel, sem æskilegt hefði verið. Brenna hefir verið lengra upp með fellinu, nær Kalmanstungu. örnefnið helzt við enn, en rústir eru nær því horfnar. Br. Jónsson hefir og skoðað þennan stað (Árb. ’93, bls. 75); segir hann viðv. Kollshamn sem nefndur er í Landnámu: »Þar uppi yfir (0. Brennu) á kolli fellsins sunnanmegin er hamraborg, sem nú heitir Nónborg, er það án efa sama sem Kollshamar«. Við þetta er það að athuga, að hamraborgin fyrir ofan Brennu er ekki sú hamraborg, sem kall- ast Nónborg. Hamraborgin fyrir ofan Brennu er »sunnanmegin« og »án efa sama sem Kollshamar«, en Nónborg er eiginlega að land- norðanverðu og laus við hina hamrana. Ovíða hefi eg komið hér á landi á þá staði, þar sem mér hafi þótt fegurra en hér á Tungufelli og við það. Fjallasýnin er ein- kennileg og stórfengleg, Eiríksjökull og Langjökull t. d., útsýnin niður um Borgarfjörðinn, landið rétt umhverfis, Húsafellsskógur og skóglendið ait niður með Hvítá, árnar; og svo sjálfur staðurinn, þak- inn þéttum skógi með berjalautum, blágresi og reyr, og iðgrænum vallendisbolluin. Eg vil ráða þeim. sem ferðast um hér á landi sér til skemtunar og hressingai’, að far'a upp að Kalmanstungu og skoða Tunguna litlu og Tungufell og fara alveg fram í odda þar sem Hvítá og Norðlingafljót falla saman. Enda er hér í Kalmanstungu- landi fleira fallegt og merkilegt að skoða, svo sem kunnugt er og enn skal á vikið. Surtsliellir. Sunnudaginn 18. júlí rannsakaði eg Surtshelli allan með ágætu ljósi. Eg hafði skoðað hann allan nema bilið milli miðgjárinnar og instu gjárinnar, í ágústmánuði 1903, en vildi nú rannsaka hann betur allan og mæla hann. Af þvi að nákvæm skýrsla um mælingu mína og rannsóknir og aðrar athugasemdir viðvíkjandi Surtshelli birtist væntanlega

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.