Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Side 56
58
5554. %
5555. 10/7
5556. 10/7
5557. 10/7
5558. 10/7
5559. 10/7
5560. 14/7
5561. 14/7
5562. 18/7
5563. 2a/7
5564. «2/7
5565. 2í/7
6566. 22/7
5567. 22/7
5568. 22/7
5569. 22/7
5570. 22/7
5571. 22/7
5572. 22/7
5573. 22/7
Forstöðumaður safnsins: Leggjatangir úr sauðarleggjum,
hafðar við skinnklæðasaum.
Sami: Hrossabrestur, fundinn af gef. á Hellisheiði 9. s. m.
Sami: Kertaform fyrir 3 kerti, úr járni.
Sami: Skinnblað fornt úr katólskri messubók, með
latínu og nótum á.
Sami: Eftirmynd (fototypi) af Reykholts-máldaga, 1
eint. af þeim er deild hins ísl. bókm.fél. í Khöfn. lét
búa til.
Næla með dönskum peningi úr silfri, með ártalinu 1777.
Sleggjuhöfuð lítið úr steini, frá Laugardalshólum.
Steinbolli, líklega lampi, með skorum umhverfis
fyrir bönd til að hengja hann upp í; fundinn í
jörðu í Laugardalshólum 1906, sbr. Arb. 1908, bls.
39—40.
Vindhanaspjald af kirkjunni á Stórólfshvoli, með gagn-
skorinni látúnsplötu, sem í er nafndráttur Friðriks VI.
með kórónu yfir, ártalið 1832 og S. G. THORARENSEN.
Kistill úr eik, útskorinn, lítill, með lömum og læsingu.
Kistill úr furu, útskorinn, fremur lítill, loklaus.
Lár úr furu, útskorinn, málaður gulur og blár (stuðlarnir).
Sleif úr rekavið (furu) dökkleit mjög og gamalleg.
Sía (tesia?), rend úr hnottré, lítil.
Skeið til að strá sikri með, úr silfri, blaðið brotið frá;
stimpluð G. L
Drykkjarglas, skygt, með mynd af pelíkani, er gefur
ungum sínum blóð úr brjósti sér (líkingarmynd, er tákn-
ar frelsarann); uppi yfir standa orðin: »aus den todt
das leben« (þýzka, þ. e. af dauðanum lifið).
Þessir tveir síðast töldu gripir eru sagðir vera úr
búi Arna byskups Þórarinssonar á Hólum.
Snældusnúður úr tré með gagnskornu látúnsverki að
ofan, lítill.
Svuntuhnappur úr gleri bláu með látúnslaufi og stend-
ur á því D.
Rjómakanna úr »Kaupmannahafnar-postulíni« svonefndu,
loklaus og brotið af handarhald.
Allir þessir gripir, nr. 5563—72, eru úr búi sira Jóns
Halldórssonar, prests í Staðarhólsþingum, og Margrétar
Magnúsdóttur frá Steinnesi.
Leirfat hvítt, bárótt, eins og ur. 4444 (og nr. 5302,