Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Síða 65
67
dalur (14). Fyrir norðan götuna, sem farin er til fjárhúsanna, heitir
túnvöllur Blóti (15) og nær frá skurði, sem er gegnum túnið ofan í
Brunnvikina (16). Blóti nær austur að Akurhólmi (17). Millitún (18),
heitir frá Akurhólum austur að gömlu garðlagi. Þar niður-undan er
Raftatangi (19); þar er skipsnaust frá dögum Þorvalds eldra Sívert-
sens, sem heitir Gustsnaust (20). Það sem eftir er af túninu austur-
eftir heitir einu nafni Akurtún (21). Brekkan um mjóddina á því heitir
Banabrekka (22). Austast á Akurtúninu er Akurhöfði (23). Uppundan
Akurtúninu er há borg, sem heitir Akurborg (24). Uppundan Akur-
hólunum heitir Hundaborg (25). Uppundan fjósinu er há borg, sem
heitir Fjósborg (26), og eru kvíar að útsunnanverðu undir henni. Milli
Fjósborgar og Hundaborgar er Gísladalur. Vestan-til við Fjósborgina
er stór steinn, sem heitir Kviasteinn (27). Þar norðurundan eru gömlu
kvíarnar, og allar lægðirnar þar á milli borganna heita Stöðullágar
(28); frá þeim smá-hækkar austur-eftir upp all-háa borg, klettótta aust-
an-til, sem heitir Gœgja (29), og skagar hún lengst austur úr borgun-
um; hún er norðan til við Akurborg. Nokkru vestar en Gægja er
Svartaborg (30). Vestur-af henni nokkuð er Stekkjarborg (31). Bæjar-
megin við Stekkjarborgina og heimundir Stöðullágum eru tvær borgir
og heita þær Nafnlausu-borgir (32). Lægðinni milli Gægju og Svörtu-
borgar hallar austur-eftir og endar hún í dálítilli vík milli kletta austast
á Hrappsey; víkin heitir Kapteinsvík (33). Þar druknaði Magnús kapt.
Arason. Norðan-til við hana eru all-háir klettar; á þeim er nátthagi og
er það kallað Brandstangatún (34). Norður-af Brandstangatúni skagar
tangi í norður út í Selasund, sem heitir Brandstangi (35), og það
heitir tanginn allur milli Kapteinsvíkur og Ljósavíkur. All-há borg er á
tanganum og heitir hún Brandstangaborg (36). Niðurundan og norð-
vestan-til við hana er vík; hún heitir Ljósavík (37). Mýrin þar upp-
undan á leiðinni að (suður að) Svörtuborg heitir Brandstangaflói (38).
Vestan-til við Ljósuvík er Litli-Hrapphóll (39). Þar norð-vestur-af er
hár hóll, sem heitir Hrapphóll (40). Austur-af honum er Hrapphóls-
tangi (41). Norðvestur-af Hrapphól er langur holtahryggur, sem
gengur í boga norðan frá sjó og nær að sjó fyrir vestan Hrappsey;
hann heitir Langás (42). Landið þar norður-af er kallað Skörðu-
naust (43) og Skörðunaustamýri (44). Milli Skörðunaustanna og
Klakkeyjanna (Skörðu) er Skörðustraumur. Fyrir sunnan Langás er
Vitanesborg (45); vestan-af henni er Vitanes (46). Vogurinn uppmeð
því að sunnanverðu heitir Grýluvogur (47). Mörg holt þar norður-af
og austur að Stekkjarborg heita einu nafni Svartbakaholt (48). Fyrir
vestan þau og sunnan Vitanesborgina er Vitanesflói (49). Milli holt-
anna og Hrapphóls er Hrapphólsflói (50). Milli Svartbakaholts og