Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 75
75
(63); vestan-við er ás, er heitir Sléttbakur (64). Framan-við Geldingaá
er Langa-hlíð (65). Gil kemur undan suðurhlið Löngu-hlíðar, er heitir
Jóhannsgil (66). Ber það nafn af vinnumanni frá Minni-Mástungu, er
Jóhann hét; varð að bjarga honum úr gilinu, og lest af trússahestum,
er hann átti að koma í tjaldstað. Sunnan- og austan-af Löngu-hlíð er
Gljúfurleit (67); nær hún frá Geldingaá að Gljúfraá (68). Innst í
Gljúfurleit er fjórði leitarkofinn. Framan-af Löngu-hlíð er Fremri-Hnapp-
alda (69). Milli hennar og Löngu-hlíðar rennur Gljúfraá. Norður-af
Hnappöldu er graslendi, er heitir Fremra-Hnappölduver (70). Fyrir
framan Gljúfraá eru Fitjaskógar (71); liggja þeir með Þjórsá og ná
fram að Innri-Skúmstungnaá (72). Framarlega í þeim er fimmti leitar-
kofi. Skógarnir eru austan-í hálendi, er heita Hjallar (73). Innsta hom
þeirra heitir Innra-Hjaliahorn (74), og suðurendi þeirra Fremra-Hjalla-
horn (75). Vestur-af Innra-Hjallahorni er Langalda (76). Suður-af
henni er Kjálkaver (77). Norður- og vestur-af Langöldu er Blauta-
kvísl (78); rennur hún í Gljúfraá. Vestur-af Hjallaveri er Starkaðs-
ver (79). í þvi er stór steinn, er heitir Starkaðssteinn (80). Sögn er,
að bárðdælingur, Starkaður að nafni, hafi orðið úti undir steininum;
var hann á leið suður að Skriðufelli; ætlaði hann að heimsækja unn-
ustu sína, er átti þar heima. Vestan-við Starkaðsver rennur Öræfa-
taglakvísl (81), rennur hún í Innri-Skúmstungnaá. Fyrir vestan kvísl-
ina eru Öræfatöglin (82); ná þau inn að Fremri-Öræfaklauf (83). Spöl
norðar er Innri-Öræfaklaufin (84). Vestur af Innri-Öræfaklaufinni er
Lambafell (85), vestan-við Fossá (86). Fram-af Lambafelli er ás, er
heitir Kista (87). Austur og fram-af henni er Kistuver (88). í suður
af Kistuveri er Skúmstungnaheiði (89); syðsti oddi hennar heitir Skúms-
tungur (90); eru Skúmstungur niður við Þjórsá. Á austurhorni heið-
arinnar eru vörður, er heita Eystri-vörður (91); nokkru vestar eru aðr-
ar vörður, er kallast Vestri-vörður (92); eru vörður þessar stöðvar-
merki leitarmanna. Vestur-af Skúmstungnaheiði kemur Fossheiði (93)
rennur Fremri-Skúmstungnaá (94) á milli heiðanna í Þjórsá framan-
við Skúmstungur. Fossheiði nær vestur að Fossá. Við útsuðurshorn
hennar er Háifoss (95) í Fossá; á fossbrúninni er hólmi í Fossá, er
heitir Árhólmi (96). Suðaustur-af Fossheiði er Sandafell (97). Austan-
og framan-í því eru Bláskógar (98); í útnorður-af Sandafelli er gras-
lendi mikið, er heitir Karnnesingur (99). Rennur Rauðá (100) milli hans
og Sandafells; rennur hún upp-undir Fossheiði og heita þar Rauðár-
botnar(lOl). Fram-af Sandafelli er »Hafið« (102); það er sandauðn mikil.
Austur-af því eru Álftavellir (103). Fram af þeim eru Ártorfur (104);
eru þær nú blásnar burtu. Vestur-af »Hafinu« er Hólaskógur (105).
Mælt er að Hrepphólakirkja hafi átt þar upprekstur á geldfé, og því