Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 61
GAMLA BÆNHÚSIÐ Á NÚPSSTAÐ
65
byggja kirkjuna, og er lýsing á henni í vísitazíubókinni: „Kirkjan
nú að öllu væn og ný, 5 stafgólf alþiljuð bak og fyrir og að báðum
hliðum með reisiþili og steinhellugólfi. Altari með grátu og prédik-
unarstól, fjalagólf í kórnum, bekkir um kór og kirkju báðum megin.
Hálfþil kvennamegin milli kórs og kirkju. Hurð á járnum með járn-
hring, loft yfir fremsta stafgólfi. Hefur þetta allt að nýjum viðum
uppsmíðað Einar Jónsson"30)
t vísitazíu 22. sept. 1660 er Brynjólfur orðinn þess vís, að hjá
Magnúsi á Hörgslandi eru 5 kúgildi, og á þá kirkjan á Núpsstað
samtals 16 kúgildi. Nú segir, að hluti kirkjunnar í Núpsstaðarlandi
beri ekki meira en 6 kúgildi og megi þá leggja hin 10 til annarra
kirkna.
Síðasta vísitazía Brynjólfs er dagsett 16. september 1672. Þar segir
meðal annars: „Það allt er til í vörzlum og varðveizlu Einars Jóns-
sonar, sem áður hefur kirkjunni fylgjandi skrifað verið. Fimm kú-
gilda virði hefur biskupinn meðtekið í Skálholt með rifinni kirkjunnar
klukku til hennar endurbætingar, þá guð vildi frið og lukku til gefa.
Utan voveiflegan tilfallandi skaða mun kirkjan verða að ábyrgjast
þann sem ei er í sjálfs haldi. Önnur fimm kirkjunnar kúgildi og
hundraðs ketill standa hjá séra Magnúsi Péturssyni eftir hans með-
kenningu hér fyrir framan í bókinni skrifaðri. Hér á staðnum eru
eftir sex kúgildi, því ekki sýnist jörðin fær um fleiri með fullum
vörzlum, fyrir blæstri, skriðum og vatnagangi, sem árlega aukast og
yfirganga. Þó er játað um vorar tíðir að presturinn hafi hálfar
leigur af átta kúgildum, þó tveimur sé aflétt fyrrskrifaðra nauðsynja
vegna“.13)
Aldrei gafst friður né lukka til að gera við hina rifnu kirkju-
klukku, enda tekur nú að halla undan fæti fyrir Núpsstaðarkirkju.
Ekki þó svo mjög „fyrir blæstri, skriðuföllum og vatnagangi“,
sem aldrei hefur verið mikill, þó nokkrar slægjur hafi glatazt heima
undir bæ. Hitt er alvarlegra, að þeir, sem áttu að vera forsvarsmenn
hennar, ræktu það hlutverk sitt slælega eða gengu beinlínis á hlut
kirkjunnar. Ekki verður séð, að kirkjan á Núpsstað hafi notið góðs
af verði þeirra 5 kúgilda, sem Brynjólfur seldi, og því síður þeirra
verðmæta, sem Magnús prestur og galdramaður á Hörgslandi hafði
á brott með sér. Vissulega mátti biskup samkvæmt lögum flytja
ónauðsynlegar eignir á milli kirkna, en fremur er þetta harðhent
meðferð á lítilli sóknarkirkju.
í vísitazíubók Þórðar biskups Þorlákssonar er enn lýsing á kirkj-
5