Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 107
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
111
og þeir draga danska fánann að hún. Á stóru burstinni sitja fuglar,
tveir á hvora hönd. 1 miðdyrunum standa tveir menn, snúa hvor að
öðrum og virðast heilsast. Þeir eru með hárkollur, í stígvélum og
hnésíðum frökkum. í dyrunum til hægri er eins klæddur maður og
horfir fram. í dyrunum til vinstri situr einhver (kona?) í síðum
búningi og horfir til hliðar. Heldur um stétt á staupi. Gegnt honum
stendur maður í eins klæðum og hinir. Heldur hann um efri hluta
staupsins (höfuðið vantar). — Frágangur góður (áreiðanlega eftir
Hallgrím Jónsson bíldhöggvara).
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Fangamarkið mun vera Th ESSED.
6. Safnskýrslan: Frá Skagafirði, Islandi.
7. Safnskýrslan:-----------Hurðin er úr tveimur ferhyrndum
speldum með umgjörð úr einföldum listum.-----------Klofinn Danne-
brogsfáni, sem lítill drengur öðrum megin á burstinni heldur á. —
Klæðnaðurinn frá 18. öld. Um 1775. —
8. Safnskýrslan: Mynd í Tidsskr. f. Industri 1903, bls. 146
(mynd 12).
1. 3206/1960. Skápur (veggskápur) úr furu. „Klæðningin á hurð-
inni og yfirbríkinni er úr ösp.---------Skápurinn er trénegldur,
en í yfirbríkinni auk þess handsmíðaðir naglar.---------Að innan
eru tvær hillur“. Br. 52. H 82.5. D. 28.
2. „Læsing og lamir hafa verið settar á seinna.“ Sprungur í
hurðinni og enn stærri sprunga í annarri hliðarfjölinni. Hluti af
klæðningunni horfinn neðst af hurðinni. Mun ekki málaður(?). 68.
mynd.
3. „Strikheflun á brúnum að framan og til hliða.“ (Ef til vill
með hliðsjón af röndunum sem eru rétt innan við brúnir á hinum
ýmsu skáphlutum). Útskurður á hurðinni og yfirbríkinni. Eru bæði
skreytið og allir bókstafirnir upphleyptir á lækkuðum grunni. Efst
á hurðinni er leturlína með latneskum stöfum og því næst kringlótt-
ur flötur, sem hefur í miðju uppistandandi jurt. Neðst við stofn-
inn er báðum megin rósetta, en efst er grein með blaði úr allmörg-
um oddhvössum flipum, og önnur grein, sem endar á minna blaði
með einungis tveimur flipum. Ljóni er komið fyrir bak við jurtina
og bítur það í grein þessa. Er frambúkur ljónsins í kyrrstöðu, það
snýr vanga að áhorfanda og lyftir annarri löpp, en bakhlutinn virðist
vera af dýri á hlaupum. Fyrir neðan tekur við næstum ferningslaga