Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 108
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1967
StarfsliS.
Starfsmenn Þjóðminjasafnsins voru eins og nú skal greina. Fastir
starfsmenn voru:
Kristján Eldjárn þjóðminjavör'ður,
Gísli Gestsson safnvörður,
Halldór J. Jónsson safnvörður,
Þór Magnússon safnvörður,
Þorkell Grímsson safnvörður,
Elsa E. Guðjónsson safnvörður (hálft starf),
íris Valberg bókari.
Eina breytingin á föstu starfsliði var sú, að Guðbjörg Kristjáns-
dóttir sagði upp starfi sínu sem bókari frá 1. maí. 1 hennar stað var
ráðin íris Valberg, en hún tók ekki við starfinu fyrr en 1. júní, svo
að skrifstofuhjálp var engin í maímánuði. Lúðvík Kristjánsson rit-
höfundur hélt áfram undirbúningsvinnu sinni að ritinu Islenzkir sjáv-
arhættir, sem hann hefur safnvarðarlaun til. Er þetta fjórða árið
og hið síðasta, sem honum var tryggð þessi aðstaða í upphafi, en
þar sem fyrirhuguðum undirbúningi varð ekki lokið á þeim tíma,
voru gerðar ráðstafanir til að hann héldi sömu aðstöðu áfram fyrst
um sinn.
Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi var hér nokkurra mánaða
skeið snemma á árinu, eins og hann hefur gert undanfarna vetur.
Vann hann að viðgerðum safngripa og ýmissi smíða- og lagfæringa-
vinnu, sem alltaf fellur nóg til af. Svavar Sigmundsson var allt árið
á vegum safnsins við endurskoðun örnefnaskráa, en raunar var hann
starfsmaður Handritastofnunar íslands. Verður starfs hans nánar
getið síðar, svo og starfs Þórðar Tómassonar frá Vallnatúni, sem
vann við þjóðháttadeildina sem lausamaður eins og á undanförnum
árum. Niður féll nú þjóðlagasöfnun á vegum safnsins, þar sem Hall-