Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 100
104
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Þessi mynd af séra Halldóri Finnssyni virðist hafa glatazt. Þó að
frú Valgerður hafi sagt, að myndin af Hannesi biskupi væri reyndar
líkari séra Halldóri bróður hans, kemur ekki til mála, að myndirnar
af bræðrunum hafi víxlazt í Kaupmannahöfn og þetta sé í raun og
veru myndin af Halldóri. Telja verður öruggt, að myndin í Félags-
ritunum sé eftir þeirri, sem Steingrímur biskup sendi og taldi af
Hannesi. Ef hún er svipaðri séra Halldóri, gæti það verið bræðra-
líking, ellegar þá að séra Sæmundur hafi haft einhverja hliðsjón af
andliti séra Halldórs, þegar hann var að gera myndina af Hannesi
biskupi eftir minni. Þó sakar ekki að minnast þess, a'ð þegar stein-
prentaða myndin kom út, var Steingrímur biskup andaður, svo að
ekki gat hann orði'ð til að leiðrétta, ef ruglingur hefur orðið á mynd-
um bræðranna.
Að lokum skal þess getið, að árið 1954 voru grafnar upp líkams-
leifar allra þeirra fjögurra biskupa, sem hér hefur verið um fjallað.
Má því spyrja, hvort andlitsbein þeirra veiti einhverja vitneskju um
andlitsfallið. Jón Steffensen vék að þessu efni í háskólafyrirlestri
10. marz 1957. Sá fyrirlestur hefur ekki verið prentaður, en góður
útdráttur úr honum birtist í samtali við Morgunblaðið.25 Um Þórð
Þorláksson ræðir Jón Steffensen ekki, og mjög varlega fer hann í að
bera saman beinaleifar hinna biskupanna þriggja og mvndir þeirra.
Hann telur bein Jóns Vídalíns sýna, að myndin af honum sé rétt í a'ð-
alatriðum, ennið þó of hátt, en þess ber að minnast, að hann hefur ekki
haft fyrir sér annað en steinprentuðu myndina, en ekki fyrirmynd
hennar. Myndin af Finni biskupi telur hann að sé nærri réttu lagi, en
þó ósennilegt, að munn- og hökusvipur sé réttur. Um myndina af
Hannesi Finnssyni tekur hann lítt af, telur þó sumt í henni fara nærri
réttu lagi, annað rangt.
VIÐAUKI
um svonefnda mynd af Brynjólfi bislmpi Sveinssyni.
í Þjóðminjasafninu er gömul mynd, sem stundum er talin vera af Brynjólfi biskupi
Sveinssyni. Það er þó ágizkun ein. Þykir rétt að geta þessarar myndar hér og
hvernig upp er kominn sá kvittur, að hún sé af Brynjólfi biskupi.
Dr. Jón Þorkelsson auglýsti eftir gömlum myndum af Islendingum í 1. árg.
Sunnanfara, 1891, bls. 8.1 þessari auglýsingu segir hann: „Mynd af Brynjólfi biskupi
‘fs Morgunblaðið 12. marz 1957.