Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 5
altarisbrík frá stað
9
-----item tafla yfir kórdyrum með þremur myndum, afgömul“. —
Vísitazíubók Ólafs biskups Gíslasonar.
20. sept. 1761: „----yfir (altari) vængjabrík máluð. Prédikunar-
stóll sæmilegur og yfir kórdyrum gömul brík méð bildhuggerverki“.
— Prófastsvísitazía.
20. sept. 1771: „----en yfir (altari) vængjabrík máluð.----------
yfir kórdyrum gömul brík með bildhuggerverki". — Vísitazíubók
Finns biskups Jónssonar.
28. ág. 1790: „Altarisvængjabrík máluð, gömul brík yfir kórdyrum
með þremur bílætum“. — Vísitazíubók Hannesar biskups Finnssonar.
22. sept. 1810: „Altarisvængjabrík máluð, gömul brík yfir kór-
dyrum með 3 bílætum“. — Prófastsvísitazía.
1. sept. 1829: „Snotur altarisbrík með vængjum máluð, gömul brík
yfir kirkjudyrum með þremur bílætum“. — Prófastsvísitazía.
4. júní 1841: „Altarisbrík með vængjum máluð, og gömul brík yfir
kórdyrum með þremur bílætum." — Úttekt kirkju og stáðar.
4.—5. júní 1895: „Kvenbílæti málað úr tré, tvö útskorin trébílæti
(annað mynd Ólafs helga?)“. — Prófastsvísitazía, séra Sigurður
Jensson.
17. maí 1903: „Gripum sínum, sem taldir eru í vísitazíunni 1895,
heldur kirkjan, svo og bókum og áhöldum, sem þar getur. Þó finnast
nú ekki ljósastjakar tveir, sem þar eru taldir, né heldur þjónustu-
kaleikur, og ekki nema annað útskurðarbílætið (auk hins málaða).
Tjáir hinn fyrrverandi prestur hér, Filippus Magnússon, að nefndir
munir hafi aldrei komið í sína umsjón“. — Prófastsvísitazía, séra
Bjarni Símonarson.
22. maí 1903: „Trébílæti tvö, annað málað, hitt mjög fornt“. —
Úttekt staðar, þegar séra Filippus afhenti.
22. júlí 1911: „Altaristafla öll úr eik, skápur með hurðum, br.
innan 81 sm og hæð 65 sm innan. Kvöldmáltíðarmynd, fremur illa
gerð; í hurðunum eru vel málaðar myndir af guðspjallamönnunum,
allgóð listaverk. Virðist taflan vera frá því um 1600.------Skorn-
ar myndir tvær úr eik, önnur íslenzk kvenmynd máluð, græn kápa,
rauður kyrtill, svart hár; hæð ca 44 sm; hin útlend að sjá, ekki heil,
eldri og vel skorin mannsmynd, áföst á fjöl, hæð 60 sm (fjölin 67
sm að 1., br. 21)“. — Matthías Þórðarson þjóðminjavörður í skrifaðri
skrá um kirkjugripi, geymdri í Þjóðminjasafni. (Matthías skrifaði
séra Jóni Þorvaldssyni á Stað 10. 3. 1915 og falaði myndirnar tvær
handa Forngripasafninu, en svar virðist ekki hafa borizt við því
bréfi, og hefur þetta mál þar með fallið niður).