Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 122
126
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
og var hún þá nokkuð höfð til sýnis fyrir almenning’, en enginn gæzlu-
maður var þar reglulega, og er það enn óleyst vandamál, hvernig
hér skuli með fara, meðan engin föst búseta er í Krýsuvík.
Að lokum skal svo á það drepið að í sambandi við gömlu húsin bíða
mörg vandamál úrlausnar, og verður að snúast við þeim eftir megni
eins fljótt og möguleikar leyfa.
Byggðasöfn.
Sama upphæð og áður var á fjárlögum til að styrkja byggðasöfn
við að koma upp viðunandi húsnæði, kr. 300.000.00. Að þessu sinni
var upphæðinni skipt þannig, að Minjasafnið á Akureyri fékk kr.
100.000.00, Byggðasafn Húnvetninga og Strandamannakr. 150.000.00,
en Byggðasafn Þingeyinga kr. 50.000.00. Fer þá áð styttast í, að
tvö þau fyrrnefndu hafi fengið þann byggingarstyrk, sem þeim ber,
en hið síðastnefnda er á byrjunarstigi. Verður Byggðasafni Þingey-
inga ætlað húsrými í sameiginlegu safnahúsi sýslunnar á Húsavík.
Nokkurn þátt tók þjóðminjavörður í umræðum um skipulagningu
útivistarsvæðis hjá Görðum á Akranesi og safnbyggingu þar í sam-
bandi við gamla húsið, sem þar stendur og nú er notað fyrir safn-
hús. Er nú þegar búið að ganga frá uppdráttum af þessu öllu, og er
ætlun Akraneskaupstaðar og nærliggjandi hreppa að hefjast handa
um framkvæmdir eins fljótt og tök eru á. Engan styrk hefur þetta
safn fengið enn sem komið er.
Stærsti viðburðurinn í byggðasafnsmálum á árinu var það, að nú
var sett upp og opnað Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
að Reykjum í Hrútafirði, og hefur þetta safn verið lengi í uppsigl-
ingu, enda óvenjulega stórt. Hefur áður verið að þessu safni vikið
í ársskýrslum. Þjóðminjasafnið á þarna hákarlaskipið Ófeig í sér-
stökum skála, en byggðasafnsskálinn er byggður í sambandi við
hann. Auk skipsins á safnið og hefur kostað uppsetningu á stofu frá
Svínavatni og baðstofu frá Syðstahvammi. Sést af þessu, áð á Reykj-
um er um að ræða eins konar tvíbýli byggðasafnsins og Þjóðminja-
safnsins, og því hefur það farið svo, að starfsmenn Þjóðminjasafns-
ins hafa lagt mikla vinnu í að koma safninu í lag. Á þessu ári lögðu
fastir starfsmenn safnsins fram um 100 daga vinnu samtals, en auk
þess Guðmundur Þorsteinsson og Þórður Tómasson um 40 daga vinnu
hvor. Var þessi vinna að nokkru leyti kostuð af byggðasafninu. Af
hálfu Þjóðminjasafnsins vann Gísli Gestsson lengst á Reykjum og réð