Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 131
FRÁ FORNLEIFAFÉLAGINU
AÐALFUNDUR 1967
Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags var haldinn I Fornaldarsal Þjóðminja-
safnsins laugardaginn 16. des. 1967 og hófst kl. 5 síðdegis. Fundarmenn voru um 30.
Formaður félagsins, Jón Steffensen prófessor, setti fundinn og minntist síðan
þeirra félaga, sem stjórnin hefur spurt, síðan síðasti aðalfundur var haldinn, að
látnir séu. Þeir eru:
Jón Sigfússon, Eiðum.
Magnús Kristjánsson, Langabotni, Bíldudal.
Óskar Einarsson, læknir, Reykjavik.
Þorsteinn Jósepsson, rithöfundur, Reykjavílc.
Risu fundarmenn úr sætum i virðingar skyni við minningu þessara félaga.
1 félagið hafa gengið á þessu ári 31 félagi, og er nú heildartala félaga 707.
Formaður skýrði frá, að Árbók 1967 væri nú í 2. próförk, og mundi bókin koma
i hendur félagsmanna í byrjun febrúar næsta ár.
Þessu næst las féhirðir reikninga félagsins fyrir árið 1966. Höfðu þeir verið
endurskoðaðir og undirritaðir.
Þessu næst var gengið til stjórnarkosninga. Kjósa skyldi stjórn, varastjórn,
endurskoðendur til næstu tveggja ára og þrjá fulltrúa til aðalfundar 1971. Kosn-
ing fór þannig, að stjórnin var endurkosin, formaður Jón Steffensen prófessor,
skrifari Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, féhirðir Gísli Gestsson safnvörður.
Endurskoðunarmenn voru endurkosnir, Einar Bjarnason ríkisendurslcoðandi og
Theodór B. Líndal prófessor. Endurkosinn var varaformaður Magnús Már Lárus-
son prófessor og varaskrifari Þórhallur Vilmundarson prófessor, en varaféhirðir
var kosinn Þór Magnússon safnvörður í stað Snæbjarnar Jónssonar, sem farinn
er úr félaginu. Fulltrúar til aðalfundar 1971 voru kosnir Þórður Tómasson, safn-
vörður i Skógum, dr. Sigurður Þórarinsson og dr. Sturla Friðriksson.
Engin komu önnur mál fram af fundarins hálfu.
Að lokum flutti dr. Sigurður Þórarinsson erindi: Náttúrufrœðilegar aldurs-
greiningaraöferðir, sem gildi hafa fyrir fornleifarannsóknir. Þetta var ítarlegt
yfirlitserindi um tímatal leirlaga, trjáhringa, plöntufrjóa og kolefnis og að lokum
öskulaga. Sýndi ræðumaður margar skuggamyndir til skýringar máli sinu.
Að lokum svaraði fyrirlesari nokkrum fyrirspurnum.
Fleira gerðist ekki. Fundi slitið.
Jón Steffensen.
Kristján Eldjárn.