Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 112
116
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ársins og síðustu mánuðum fyrra árs. Þá hefur Elsa E. Guðjónsson
flutt kynningarerindi um þjóðbúninga hjá ýmsum félagasamtökum
og þjóðminjavörður tók á móti nokkrum hópum félagsmanna og
hafði með þeim leiðsögn um safnið.
Geta má þess til minnis, að sett var upp ný mynd af Óskari Hall-
dórssyni í Vaxmyndasafni hinn 23. febrúar, í stað þeirrar, sem varð
fyrir því óhappi áð detta á gólfið og brotna, svo að óbætanlegt var.
Sýningar og aðsókn.
Eins og að undanförnu var safnið opið fyrir almenning, alla daga
í júní, júlí og ágúst, kl. 1.30—4.00, en aðeins fjóra daga í viku aðra
mánuði ársins. Á þessum almenna sýningartíma töldust safngestir
42.323 á móti 42.928 árið 1966. Auk þessa er svo ætíð nokkuð um
það, að tekið sé á móti hópum á öðrum tímum, t. d. skólum utan af
landi, einkum á vorin eftir próf, en hér munar þó mest um ferða-
mannahópa þá, sem leyft er að koma í safnið, þótt lokað sé, á vegum
Loftleiða og ferðaskrifstofunnar Landa og leiða. Allir þessir gestir
geta naumast verið færri en 3000, og að meðtöldum 1161 gagnfræða-
skólanemanda undir leiðsögn Hjörleifs Sigurðssonar er þá heildar-
tala safngesta 46.484.
Haldnar voru 11 sérsýningar í Bogasalnum eða eins og nú skal
greina:
Elías Halldórsson, málverkasýning, 4.—12. febr.
Gísli Sigurðsson, málverkasýning, 18.—26. febr.
Þorvaldur Skúlason, málverkasýning, 4.—19. marz.
Gunnar Frióriksson, sýning vatnslitamynda, 8.—16. apríl.
Susan Jónasar, Reykjavíkur-myndir, sýning vatnslita- og olíu-
mynda, 22.—30. apríl.
Ragnheióur Jónsdóttir Ream, málverkasýning, 6.—16. maí.
Hringur Jóhannesson, málverkasýning, 20.—28. maí.
Nína Tryggvadóttir, málverkasýning, 15. júní—2. júlí.
Félag frímerkjasafnara, Frímerkjasýningin Filex 67, 2.—10. sept-
ember.
Sveinn Björnsson, málverkasýning, 6.—15. okt.
Kristján Friöriksson, málverkasýning, 18.—26. nóv.
Sovézka sendiráðiö, Sovézk bókasýning, 8.—20. des.