Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1984, Page 19
GÍSLI GESTSSON
23
8. mynd. íslendingar á Kóngsins Nýjatorgi í Kaupmannahöfn sumarið 1929. Frá vinstri: Elling
EUingsen verkfrœðingur, Hjalti Árnason verslunarmaður, Hjörtur HaUdórsson tónlistarnemi,
Ásgeir Pétursson verkamaður, Gísli Gestsson verkfræðistúdent, Sverrir Kristjánsson sagnfrœðistúd-
ent, Ársæll Sigurðsson tungumálafræðingur og trésmiður, Björn Fratizson eðlisfræðistúdent, Torfi
Ásgeirsson hagfrœðistúdent. t myndartexta áðurnefndrar bókar er sumum þessara tnanna skipað í
heldur ískyggileg hlutverk.
Tunglið ofan brosir bleikt,
bíllinn þýður skríður.
Magga, Hallgríms hold er veikt,
livað sem þínu líður.
Sumir eru einkar áíjáðir í að vita, hvar þessi eða hinn sé nú í pólitík-
inni. Einatt hugsa þessir forvitnu þá í tveim höfuðáttum eða svosem
fjórum flokkum og eru ósjaldan harla skjótir til ályktana á grundvelli
ættar- eða kunningjatengsla. Hvar átti nú að tjóðra Gísla á bás?
Mörgum fannst einsýnt, að Gísli hlyti að vera Sjálfstæðismaður úr því
að hann var bróðir Steinþórs og bróðursonur Eiríks alþingismanna.
Aðrir minntust þess, að Gísli var mágur tengdasonar Jónasar frá Hriflu
og Hjalti bróðir hans hafði verið á lista hjá Framsókn. Priðji hópurinn
gróf það upp, að Gísli hefði umgengist sæg af ungum kommúnistum á
stúdentsárunum í Kaupmannahöfn og haldið kunningsskap við þá
síðan.