Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1984, Blaðsíða 52
56
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ofantil og fellt undir streng.“7 Ekkert annað undirpils með áföstum
upphlut hefur varðveist það vitað er, og ekki heldur stakt svo gamalt
sem þetta, en til er faldbúningur frá fyrri hluta 19. aldar eða öldinni
miðri þar sem sjálf samfellan er saumuð við upphlutinn.28
Yfir upphlutnum er stutt treyja úr svörtu flaueli mjög snjáðu, sér í
lagi á ermunum (5. mynd). Gæti því virst sem þær væru eldri en bol-
urinn, en þó er að sjá að sama efni sé í treyjunni allri. Framan á henni
eru gylltir baldýraðir borðar með blómauppdráttum, en auk þess eru
lagðir gylltir líberíborðar til hliðar við þá, á axlasaumum, saumum á
baki, á handvegssaumum að þremur fjórðu, framan á ermum og
meðfram ermaklaufum.2'7 Mjög hefur fallið bæði á baldýringuna og
borðana. Treyjan er krækt upp úr að framan með krókum og lykkjum
að innanverðu. Þá eru ermarnar með kræktum klaufum og þræddar
undir þær flauclsræmur með ermahnöppum á. Eru það litlir tvíhvolfa
víravirkishnappar úr gylltu silfri með gröfnum laufum30. Virðast hafa
verið átta hnappar á hvorri ermi, en eru nú fimm eftir á vinstri crmi og
sjö á þcirri hægri.
Áfastur við treyjuna er fremur mjór stinnur kragi lagður svörtu
flaueli með gylltri baldýringu með áþekku munstri og á treyjuborðun-
um.31 Er kraginn bryddur svörtum rifsborða. Er þetta eina treyjan með
áföstum kraga sem varðveist hefur svo vitað sé, en talsvert er til, meðal
annars í Þjóðminjasafni íslands, af kragalausum treyjum og lausum
krögum. Treyjur með áföstum krögum eru hins vegar nefndar í heim-
ildum.32 Má vera að þær hafi verið algengari á síðari hluta 18. aldar en
á 19. öld, en frá síðara tímabilinu eru flestar treyjurnar í Þjóðminjasafni.
Pilsið (niðurhluturinn, fatið) er úr þykku dökkbláu klæði, fellt undir
streng að ofan eins og undirpilsið, en heldur síðara og víðara en það (6.
mynd). Á því framanverðu, fyrir miðju ofantil, er löng klauf, pilsopið,
brydd rauðu klæði, en auk þess eru undirfóðruð vasaop sitt á hvorri
hlið. Engir vasar eru þó á pilsinu. Neðan á pilsinu er brydding úr rauðu
vaðmáli, en ofan við hana breiður marglitur blómstursaumsbekkur.
Bekkurinn nær ekki alveg saman að framanverðu, enda kemur svunta
yfir pilsið, jafnsíð því, sem hylur ósaumaða hluta þess og þá pilsopið
um leið.33
Svuntan er úr sama efni og pilsið, rauðbrydd eins og það og með
samskonar útsaumi að neðan (7. mynd). Bæði pilsið og svuntan eru
með breiðu skófóðri úr grófgerðu rauð- og hvítrúðóttu hör(?)lérefti.34
Svuntunni fylgja nú tveir svuntuhnappar með víravirki úr gylltu silfri,
annar einhvolfa með laufi, hinn tvíhvolfa án laufs (sjá 8. mynd), en
samkvæmt lýsingu Hooker hafa hnapparnir upprunalega verið þrír,