Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1984, Blaðsíða 55
ÍSLENSKUR BRÚÐARBÚNINGUR í ENSKU SAFNI
59
Beltið með búningnum er stokkabelti með sprota, svonefnt sprota-
belti (8. mynd). Er sprotinn sérlega langur, enda mun þetta vera lengst
íslenskra sprotabelta sem varðveist hafa frá fyrri tíð. Beltið er úr dökk-
grænu flaueli, fóðrað með dökkgrænu silki, alsett fremur háum fer-
strendum gylltum silfurstokkum og með gyllta sylgju og sprotaenda.37
Allt er silfrið kornsett hringavíravirki nema sjálf sylgjan, sem er steypt.
Eru þrettán stokkar á beltinu og sautján á sprotanum auk sprotaendans,
sem er fallega grafinn að aftanverðu. í Þjóðminjasafni íslands er stokka-
belti með áþekkum stokkum og ennfremur stök sylgja af líkri gerð, og
er ekki ósennilegt að tengsl séu milli þessara smíðisgripa, þótt nú séu
þau ókunn.38 Rétt er að geta þess að svuntan var ekki bundin eða
hneppt um mittið með böndum eða streng, heldur voru svuntuhnapp-
arnir saumaðir við strenginn ofanverðan og hékk svuntan á þeim á belt-
39
ínu.
Eins og áður var sagt, fylgir búningnum mikið og vandað kvensilfur.
Millurnar og beltið eru út af fyrir sig mjög mcrkir gripir, en þó er sem
þau blikni fyrir herðafestinni miklu og hálsfestinni sem bornar hafa
verið yfir treyjunni.
Einkum er herðafestin gyllta merkileg (8. mynd). Sjálf festin er úr
þremur gildum silfurkeðjum, sundurteknum og skeyttum saman með
sex víravirkisskjöldum. Að framanverðu er bryggja með hnúð upp úr,
hvort tveggja með víravirki, en niður úr bryggjunni hangir krossmark
úr kaþólskum sið með húsi undir helgan dóm. Á krossinum öðrum
megin eru steyptar myndir af hcilagri þrenningu og táknum guðspjalla-
mannanna, en hinum megin af Maríu mey með Jesúbarnið. Er krossinn
talinn þýskt eða niðurlenskt verk frá um 1520. Aftan á herðafestinni er
myndaskjöldur eða kinga með ártalinu 1537, sem talin er vera af líkum
uppruna og krossinn. Á skildinum annars vegar er mynd af fórn ísaks,
en hins vegar krossfestingarmynd. Festin sjálf er helst talin vera 17. eða
18. aldar norræn smíð, en engir stimplar eru sjáanlegir á henni er gætu
gefið nánari vitneskju um uppruna hennar.40
Líkur kross, ekki þó eins vegleg smíð og krossmarkið á þessari
herðafesti, er í Þjóðminjasafni íslands. Hann er reyndar ekki frá mið-
ö.ldum þótt gerðin sé þessleg, heldur ber hann stimpla sem sýna að hann
er smíðaður í Kaupmannahöfn á árunum 1717—1718. Festin er þreföld
og hangir krossinn niður úr bryggju með hnúð upp úr líkt og kross-
markið sem Hooker eignaðist. Nokkrar festar aðrar með krossmörkum
af líkri eða skyldri gerð hafa varðveist frá íslandi og munu þau vera
talin frá miðöldum.41 Þá hefur og tíðkast nokkuð hér á landi að bera
festar með kingum eða brjóstkringlum sem svo voru einnig nefndar.