Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1984, Qupperneq 185
RANNSÓKN FORNRÚSTAR VIÐ AUEJNUGIL
189
járnhlutur, sem líkist einna hclzt höldu af kistli, lá á gólfinu í suðurhluta
hússins. Hann er um 7,3 sm milli enda, beygður eins og halda og sleg-
inn saman um miðjuna og bóla þar á. Rétt utan við austasta húshornið
fannst lítil bronsþytwa, og hafa jaðrarnir verið slegnir yfir urn þunnt
járn, sem nú er að mestu ryðgað burtu. Hlutur þessi er um 2,5 snr
breiður í annan endann og hefur mjókkað til hins, en þar er brotið af
endanum. Tvö lítil göt hafa verið á þessum hlut, en óvíst er hvað þetta
er, líkist helzt einhvers konar sprotaenda.
Um 7—8 m í vcstur frá þcssu húsi voru háar þúfnamyndanir, og var
grafinn þar prófskurður frá norð- vestri til suð- austurs. Undir grasrót-
armold tóku við rofmoldir og um 60—70 sm undir yfirborði komu í ljós
tveir veggir, sem lágu þvert á skurðinn. Voru þcir greinilega samsíða
og breiddin milli þeirra um 2,90 m. Vottaði fyrir gólflagi á milli veggj-
anna, en þó var það óljóst. Veggirnir voru gerðir úr torfum, sem ef til
vill mætti kalla streng, og hefur a.m.k. ein þeirra verið um 1 m að
lengd. í torfunum sást greinilega öskulagið, scm talið er komið af
Torfajökulssvæðinu um 900, „landnámslagið" svonefnda. Einnig sást
ógreinilega votta fyrir öskulaginu frá Heklu 1104 í torfunum, og má af
þessu tvennu nrarka það, að þessi bygging hafi sennilegast vcrið rcist á
12. öld. Þetta hús var ckki rannsakað nánar, en sennilegt virðist, að
bæði húsin séu frá sama tíma. — Guðmundur Jónsson á Kópsvatni rann-
sakaði að mestu þessa veggi, eftir að aðalrannsókninni þarna var hætt,
og eru upplýsingar um þctta hús aðallega frá honum komnar.
Þótt ekki hafi þarna verið rannsakað til hlítar nema þetta eina hús við
Auðnugil eru þó fleiri mannvirki sýnileg á þessu svæði. Ofan við
veginn, norð- austan við rannsóknarstaðinn, er stór og mikil tóft, sem
snýr nokkurn veginn frá vestri til austurs. Örlítið var grafið í hana til
prufu, cn þó of lítið til þess að neitt kæmi í ljós, hvers cðlis hún væri.
Þarna austan vegarins cru og flciri mannvirki, og virðist þar vera a.nr.k.
ein hringlaga rúst. Hún er sennilegast af fjárborg, cnda heitir þarna í
grenndinni Borgardalur. En þessar rústir voru ekki rannsakaðar.
Ekki mun neins staðar vera getið um byggð á þessum stað í heim-
ildum svo vitað sé. Rústirnar virðast mjög gamlar, og enn sem komið
er eru það aðeins eldfjallaöskulögin frá um 900 og 1104, sem gefa
nokkuð til kynna um aldurinn, og er þó ekki vert að draga of ákveðnar
niðurstöður um aldur rústanna á þessum slóðum út frá öskulögunum
einum. Hafi húsið, sem rannsakað var, verið íveruhús, sem allt virðist
benda til, hefur það verið af annarri gerð en flest slík hús sem rann-
sökuð hafa verið hérlendis. Sögualdar- og miðaldahús einkennast af
hinu aflanga skálalagi, þar sem skálinn er gríðarstórt hús, oft yfir 20 m