Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1984, Side 208
212
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
þannig hið innra litla dæmigerða sveitakirkju frá 19. öld. Flutningur er
þó ckki tímabær enn og það ráð var tekið með hjálp heimamanna að dytta
að henni á staðnum. Fyrir 2 árum var sett járn á þakið og í sumar voru
settir nýir gluggar í, en hinir gömlu voru ónýtir.
Hafizt var handa um viðgerð Búðakirkju á Snæfellsnesi, sem reist var
1848 og síðan mikið endurnýjuð og breytt. — Fékkst allmyndarlegur
styrkur úr ríkissjóði til viðgerðarinnar, og var kirkjan færð á hærri stað
og rétt norður fyrir kirkjugarðinn, þar sem snjór og vatn mæðir ekki á
henni eins og var.
Unnið var að viðgerð Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu, og var
endurnýjuð austurhliðin að mestu fyrir fé úr Húsafriðunarsjóði.
Sá vondi atburður gerðist, að húsið Lundur á Oddeyri, fyrsta hús
sem þar var reist og bæjarstjórn hafði friðlýst, var rifið til grunna
og öllum viðum hent. Var nýr eigandi að húsinu og hafði hann keypt
það með friðlýsingarkvöð, cn þá dæmdi hann húsið „ónýtt". Var nýtt
hús reist með svipuðu sniði, en óvíst er, hve nærri það fer gamla hús-
inu, og er auðvitað ekki um það að ræða, að sá Lundur, sem Þorsteinn
Daníelsson reisti, sé cndurrisinn, heldur í mesta lagi eftirlíking hans.
Þá eru það einnig ótíðindi, að gamla prestsetrið á Húsavík, hinn
gamli Húsavíkurbær, scm stóð við gamla kirkjugarðinn, var brenndur
að frumkvæði eigandans, Húsavíkurkaupstaðar. - Þjóðminjavörður
hafði skoðað bæinn ásamt Herði Ágústssyni fyrir nokkrum árum og
þótti þeim hann merkilegur, eú hann var allilla farinn. Voru aðeins eftir
tvær burstir af þremur, en langhliðin sneri fram á hlaðið, og þá höfðu
skátar umráð bæjarins og höfðu þar aðstöðu fyrir starfsemi sína. Fengu
þeir nokkrar leiðbeiningar um viðgerð bæjarins, sem menn virtust þá
hafa fullan hug á, og var vonað að hægt yrði að gera vandlcga við hann,
cn hann var hinn síðasti sinnar tegundar, stóð mjög fallega á hinu
gamla bæjarstæði, sem vafalaust er hið elzta á staðnum, og í kirkjugarð-
inum stóð Húsavíkurkirkja allt þar til núverandi kirkja var reist 1907.
Þá hafði safnið nokkur afskipti af Þóroddsstaðarkirkju í Köldukinn,
sem reist var 1889 og rifin á árinu. Var reynt að koma í kring viðgerð
kirkjunnar í stað þess að rífa hana og reisa nýja, en það lánaðist ekki.
Á undanförnum árum hefur safnið fengið smáfjárveitingar til
nokkurra kirkna, sem staðið hefur til að gera við, og Húsafriðunar-
sjóður hefur einnig veitt nokkurt fé til byrjunarframkvæmda á nokkr-
um stöðum þar sem viðgerð hefur þó ekki komizt af stað, og má nefna
Árneskirkju í Trékyllisvík og Stafafellskirkju í Lóni. - Þarna hefur
komið upp óeining heima fyrir um viðgerð, sumir viljað nýbyggingu
í staðinn, og því standa málin í hnút, sem ekki cr alltaf auðleystur.