Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Side 54
58
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Umskiptin frá Mammen- til Hringaríkisstíls
Stigin milli eins stíls og þess næsta einkennast til dæmis af því, að þeir
eru svo samtengdir bæði í vali á myndefni og myndbyggingu, að skraut
frá síðasta skeiði gamla stílsins og fyrsta skeiði hins nýja sýna svo fljótandi
mörk, að stundum er alveg ógerlegt að flokka skrautverkið í öðrum hvor-
um stílnum, það er bæði og. Mjög gott dæmi um þetta er skrautið á hinum
prýðilega útskornu furuþiljum frá Möðrufelli, Þjms 6096 a-e og 7015 a-h
(mynd 2),31 þar má greinilega sjá hvernig tveir náskyldir stílar, báðir ákaf-
lega bundnir fletinum, Mammen- og Hringaríkisstíll, fléttast saman.
Myndefnið eru sérstakir stafir, sem enda í einhverju sem líkist spjótum
eða krossum, einnig má sjá tré með tveimur uppréttum stofnum, sem vefj-
ast hvor um annan, snigil og akantusblöð. Þetta skraut má telja til bæði
Mammen- og Hringaríkisstíls bæði hvað mótíf og stíl varðar. Annað
merki um hve nátengdir tveir og jafnvel fleiri stílar eru, og samtíma að
hluta, er sú staðreynd að á einum og sama hlut geta verið atriði úr tveim-
ur eða fleiri stílum. Þetta getur verið á mismunandi skrautflötum hlutar-
ins eða jafnvel á einum og sama fleti. A íslenskum gripum hef ég ekki rek-
ist á svo flókna stílblöndu, en nefna má dæmi frá Lejre í Danmörku.32
Þriðja einkennið á því þegar einn stíll er að ganga sér til húðar og annar að
taka við, má t.d. sjá er báðir koma fyrir hvor á sinni tegund gripa, sem
finnast saman og má stundum greina innbyrðis áhrif milli þeirra. Dæmi
um þetta eru nælur af svonefndri Alaborgargerð í Úrnesstíl og Agnus Dei
nælur í rómönskum stíl. 3 Að því ég best veit hafa enn ekki fundist nælur
af svonefndri Alaborgargerð á Islandi, en hér verður að taka fram að næl-
ur af Álaborgargerð og Agnus Dei nælur finnast oft í Danmörku á sömu
stöðum eða nálægt hver annarri ásamt svonefndum Úrnesnælum.3' Frá
Tröllaskógi hafa bæði komið Úrnesnæla, Þjms 6524, og næla af gerðinni
sem nefnd er Agnus Dei, Þjms 5998. Framtíðin hlýtur að leiða í ljós hvort
nælur af Álaborgargerð finnast á Islandi.
Hringaríkisstíll
Hringaríkisstíll dregur nafn af sandsteinssvæðinu í Hringaríki skammt
norðan við Ósló. Þar er einmitt fengið efnið í flokk skreyttra steina (frá
Alstad, Tanberg, Strand og Dynna) sem sýna stílinn dæmigerðan.3’
Hringaríkisstíll notar að mestu sama myndefni og Mammenstílinn, þann-
ig ber einnig mest á stóra ferfætta dýrinu, slöngulaga dýri sem oft er að-
eins með framfætur, slöngulaga dýri sem ekki hefur neina útlimi, fugli,
grímu, mannamyndum, krossi, skipi og tré með tveim uppréttum stofn-
um sem vefjast hvor um annan. En einnig koma til sögunnar nokkur ný