Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Blaðsíða 102
106
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Beckwith telur þessi speldi vera frá um 900 e.Kr. Það var annars siður
rómverskra ræðismanna keisaratímans að láta skera handa sér slíkar fíla-
beinstðflur, þar sem frá þeim greindi, og gáfu þeir þessi tákn keisaranum,
öldungaráðsmönnum og áhrifamiklum vinum sínum. Eiga spjöld Greg-
oriusar páfa uppruna þar sem eru þessi ræðismannaspjöld. Ekki eru ýkjur
að segja að myndkringlur og kringlur með öðru efni setji svip sinn á stól-
ana frá Grund. Skornar eru myndkringlur framan á sessbrún á hásæti sem
sjá má á býsönsku ræðismannsspeldi sem talið er frá 6. öld. Þetta á hásæt-
ið á speldinu sameiginlegt með stól Rafns.
Báðir hinir hugðnæmu birkistólar frá Grund hafa varðveist vel. En þeir
hafa bersýnilega dökknað með tímanum. Alykta má að smiðurinn gefi
þeim viljandi fornan svip. Er þannig halli til vinstri ofan á stól Rafns, og
Arastól hallar til hægri að ofanverðu. Smiður stólanna, sem mér þykir afar
líklegt að sé Ari Jónsson, lögmaður, hefur verið einstakur þjóðhagi,
smekkvís, og kunnað skil á fornum fróðleik. Lag smíðisgripanna tveggja,
eins og heimt úr grárri forneskju, heillar augun, en skreytingin, þróttmikil
og fjölbreytt, lýtur þó hófsemi. Hvor um sig eru stólarnir frá Grund í raun
og veru safn fornra hugmynda og atriða, afar víða borið niður, og tengsl
sjást við býsna gamlar og fjarlægar minjar. Efnisvalið ber vott um frjáls-
lyndi. Er hér að verki heimsborgari, að því er best verður séð.
Heimildir
Alexander Jóhannesson. Isltindisches etymologisches Wörterbuch. Bern 1956.
Beckwith, John. Early medieval art. Carolingian Ottonian Romanesque. London 1968.
Björn Þorsteinsson. Eru varðveittar myndir af Jóni Arasyni og börnum hans? Saga V, Reykja-
vík 1965-67.
Brown, G. Baldwin. The arts in early England. London 1903-37.
Campbell, Joseph. The masks ofgod. New York 1976.
Collingwood, W. G. Northumbrian crosses ofthe Pre-Norman age. London 1927.
Daniélou, Jean. Primitive Christian symbols. London 1964.
Davidson, H. R. Ellis. Gods and Myths ofNorthern Europe. London 1964.
Demus, Otto. The Church of San Marco in Venice. 1960.
Eddukvæði. Útg. Guðni Jónsson. Reykjavík 1949.
Egils saga einhenda ok Ásmundar berserkjabana. Fornaldarsögur Norðurlanda III. Útg. Guðni
Jónsson. Reykjavík 1949.
Erlande-Brandenburg, Alain. L'Univers desformes. La conquéte de L'Éurope, 1260-1380.1987.
Falk, Otto von. Deutsche Möbel des Mittelalters und der Renaissance. 1924.
Graham-Campbell, James. Das Leben der Wikinger. Mrinchen 1982.
Guðbrandur Jónsson. Herra ]ón Arason. Reykjavík 1950.
Handwörterbuch des deutschen Aberglaubens I-X. Útg. E. Hoffmann-Krayer og Hanns Báchtold-
Stáubli. Berlín, Leipzig 1927-1942.
Hauck, Karl. Formenkunde der Götterthrone des heidnischen Nordens. Offa 1984.
Henig, Martin ritstj. A Handbook ofRoman Art. Oxford 1983.
Hibbard, Howard. The Metropolitan Museum ofArt. New York 1980.
Holmquist. Valöfyndet. Antikvariskt Arkiv 4 1956.