Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Síða 96

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Síða 96
100 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS beri hann normannskt verk eða engilsaxneskt. Þarna getur að líta húgögn. Sjá má kolla og bekki, og loks kassastóla, eins og það orð hefur verið skilið hér, og eru þessir kassastólar hásæti. Kollótt hásæti sjást á reflinum. Meðal þeirra eru breiðir hásætiskollar. í lokakafla Njáls sögu er sagt frá því að Flosi Þórðarson hafi sett Kára Sölmundarson í hásæti hjá sér, og gerðist þetta í stofu á Svínafelli. Hásætið kann að hafa verið bekkur eða breitt sæti. Þess má og minnast að Flosi kastaði í pall undan sér hásæti þegar hann kom í Ossabæ til fundar við Hildigunni, segir frá því í 116. kafla Njálu. Hverfum aftur að reflinum. Þar er venjulegt hásæti sýnt tvisv- ar. í fyrra skiptið þar sem fjallað er um valdatöku Haralds Guðinasonar, sem varð Haraldur II. Englandskonungur. Bak hásætisins er lægra vinstra megin. I seinna skiptið, en þá er á himni halastjarna, situr konungur í hásæti og maður talar við hann. Gæti umræðuefnið auðvitað verið hala- stjarnan, sem fólki á þessum tímum þótti boða vá. Þetta sæti er frábrugðið hinu, líkist það nokkuð Grundarstólunum, og tekur áhorfandi eftir því að þverfjölin efst í baki sveigist lítið eitt upp, og hún sveigist mjög niður til vinstri. Lík auðkenni eru á stól Rafns Brandssonar á Þjóðminjasafni. Efri þverfjölin í stól Rafns Brandssonar er með bogadregnu sniði jafnt að ofan sem að neðan, þarna lágir bogar. Hliðstæðu í sniði getur að líta að vissu leyti þar sem er efsta brúnin á hásæti Maximians í Ravenna, og verður komið að þeim stól síðar. Þetta snið efst á stól þekkist meðal germansk- rómverskra stóla. I þessu efni er vert að beina athyglinni að engilsaxneskri list. Hið lága bogsnið sést t.d. á gígju sem upp kom við fornleifarannsókn í Sutton Hoo á Englandi, en þar fannst konungshaugur frá 7. öld e.Kr., á steinkrossi í Halton, á hinum fornu legsteinum sem nefnast „hogback", og víðar. Menn hafa gert því skóna að Bayeux-refillinn eigi heima í engilsax- neskri list. Hefur verið lögð áhersla á listamiðstöð í Canterbury í því sam- bandi. Lágt bogsnið einkennir bakið á útskornum bekk frá Kungsára í eigu Statens historiska museum í Stokkhólmi. Bekkur þessi, talinn frá um 1100 e.Kr., er í rómönskum stíl og stíl víkingaaldar. Þetta sama snið baks sést á fornum norskum stólum. Við plægingu þar sem heitir Valö í Svíþjóð, í héraðinu Upplandi, kom úr jörð árið 1953 ferstrendur stólpi úr furu, 1 m 95 sm á hæð, með hests- haus skornum á enda að ofan. Talið er að stólpinn sé úr baki bekks eða stóls, ef til vill úr baki öndvegis. Líklega er hann frá 8. eða 9. öld. Hásæti með mjög háum bakstólpum virðast hafa tíðkast á írlandi. Á steinkross- inum sem kenndur er við Moone þar í landi og kynni að vera frá 9. öld getur að líta tvo stóla með háum stólpum skreyttum dýrshausum. Á ann- arri myndinni sjást heilagur Páll og heilagur Antoníus, á hinni Abraham og Isak. I skinnhandritinu sem kennt er við klaustrið í Kells á írlandi er
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.