Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1993, Side 147
LEIÐRÉTTINGAR
við grein Guðrúnar Sveinbjarnardóttur,
„Vitnisburður leirkera um samband Islands og Evrópu á miðöldum"
í Árbók 1992
Nokkrar villur læddust inn í grein mína í síðustu Árbók, sem ég leið-
rétti hér með. Skaftbrotið frá Bergþórshvoli (BÞH 27:472), sem fjallað er
um á bls. 35 mun líklega eiga að tímasetja til 14. aldar. Ekki eru allir sam-
mála um það á hvaða tímabili gerð 1, sem Bergþórshvolsbrotið er af, var
framleidd, en talið er að ílát af þessari gerð sem flutt voru út til Evrópu
megi tímasetja til síðast á 13. eða í byrjun 14. aldar (sjá T. Pearson 1982.
The dating of Scarborough ware í Medieval Ceramics 6, bls. 87-93). Á bls. 37
er fjallað um smábrot sem fannst við uppgröft í Viðey (V-52609). Er það
greint sem Rouen, en réttara mun að kalla það norðurfranskt að uppruna.
Margar tegundir leirkera með grænum glerungi, sem erfitt er að greina
nákvæmlega til uppruna, voru framleiddar í Norður-Frakklandi á mið-
öldum. Þeim svipar að mörgu leyti til leirkera frá Rouen. Á sömu blaðsíðu
hefur númer grængleraðs brots sem fannst í Viðey misritast í texta og einn-
ig fundarstaður. Á það að vera V-52659 eins og í texta við 5. mynd og fund-
arstaður er stofan (M40).
Corrections to
"Contact between Iceland and the European continent in the medieval period"
by Guðriin Sveinbjarnardóttir published in Árbók 1992
The Scarborough pipkin handle shown in fig. 2 should probably be dated to the early
14th century. Although there is no general concensus on when the type was produced, the
exported vessels are thought to date to the late 13th or early 14th centuries (Pearson, in
Medieval Ceramics 6, 1982). - V-52609 shown in fig. 4 and identified as Rouen should be
termed as northern French. Many green glazed medieval wares, not attributable to a definite
source, but in many ways similar to Rouen are known.
Guðrún Sveinbjarnardótttir