Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Síða 8
8
fast vlö trú sína og þjóðsiðu, og greindu sig nákvæm-
lega frá öllum öðrum þjóðum, en samt sem áður hik-
uðu þeir þó eigi við, að taka sér bústað víðsvegar í út-
löndum, og á dögum Páls poslula voru Gyðingar bú-
settir ( hverri stórri borg um allt Rómaríki; fyrir því
voru heiðingjarnir eigi með öllu ókunnugir hinum al-
mátluga skapara himins og jarðar og hinu heilaga lög-
máli bans; þelta hlaut því að styðja að kristniboðinu
meðal þeirra, jafnvel þó Gyðingarnir einatt væru hinir
mestu óvinir þess.
Af því sem hér er sagt, má sjá, að eptir Guðs al-
vísu ráðstöfun var það margt, er sluddi að því, að
kristniboðið hefði mikinn árangnr hjá heiðingjunum; en
einkum hafði Páll postuli í fyllsta mæli þá sérstöku
hæfilegleika, er gjörðu hann fremur öllum hinum post-
ulunum að úlvöldu verkfæri í Guðs hendi til að snúa
lieiðingjum til trúarinnar á Jesúm Iírist. Páll postuli
var að eðlisfari kjarkmikill og framkvæmdarsamur; það
sem hann lók fyrir, því fylgdi hann fram af öllum mælti;
svo ákaflega scm hann áður ofsókli Gtiðs söfnuð og var
flestum löndum sínum fremri ( fastheldni við Gyðinga-
trúna, svo öfluglega gekk hann fram í þvi, að efla og
úlbreiða krislindóminn, eptir að Guðs náð hafði kallað
hann til þess; bann var skapmikill og hafði ákafar lil-
finniiigar; annars mundi ræður hans eigi hafa verið svo
heitar og áhrifamiklar sem þær voru. Llann var borinu
og barnfæddur meðal heiðingjanna og hefur því þegar
á únga aldri kynnst háttum þeirra og skoðunum; við-
kynning hans við þá hefur og hlotið að leiða huga ltans
út yfir takmörk Gyðingaþjóðarinnar og örfa ábuga hans
á því, að gjöra þá hluttakandi í Iírists evangelíó; hann
hafði verið setlur til menta og álti því hægra með að