Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Blaðsíða 14
14
arefni, Um þetta leyti skrifaði Páll bréf sín til Tessa-
lonfkumanna til að leiðbeina hinum nýstofnaða söfnuði
þar og hughreysta hann. En er Páll hafði dvalið all-
lengi í Iíorinluborg fór hann þaðan til Efesus, mikillar
borgar á vesturströnd Litlu-Asíu, og síðan til Jerúsalem;
á þeirri leið mun hann hafa komið við á Krítarey og
skilið þar eptir Títus lærisvein sinn til að skipa fyrir
um stjórn safnaðanna; í Jerúsalem dvaldi Páll skamma
stund, en fór þaðan heim til Antiokkíu og hafði hann
nú lokið hinni annari kristniboðsferð sinni.
Innan skamms hóf Páll hina þriðju kristniboðsferð
sína frá Antiokkíu ; fór hann þá um Galataland og Fryg-
giu í Litlu-Asíu og styrkti hvervetna söfnuðina ; síðan
hélt hann til Efesusborgar; þar kendi PálJ í meire en
2 ár ; vóx orð Drottins og eflðist kröptuglega fyrir munn
hans og breiddist út víðsvegar nm löndin þar í grend;
frá Efesus ritaði Páll bréf sitt lil Galatamanna og fyrra
bréöð til Korintumanna, til að eyða flokkadiáttum, er
komið höfðu upp í söfnuðunum; í Efesus var muster.i
eill helgað gyðjnnni Díönu; var það meðal hinna mestu
skrautbygginga í fornöld, og höfðu smiðir margir at-
vinnu af því að smiða líkneski til þess; en er kenníng
Páls liafði svo mikinn árángur, að við sjálft lá,
að Díönudýrkunin mundi gjöreyðast, þá vakti Demetríus
nokkur silfursmiður uppþot mikið í borginni; fyrir þvi
fór Páll þaðan og yfir lil Masedoníu ; þaðan rilaði hann
hið fyrra bréf sitt til Timóteusar, og seinna bréfið til
Korintumanna; en skömmu siðar fór iiann sjálfur til
Korintuborgar; þar dvaldi Páll í 3 mánuði og ritaði bréf
sitt til safnaðar þess, er myndast hafði í Rómaborg; síð-
an sneri Páll aptur við og hélt áleiðis til Jerúsalem
með gjafir frá söfnuðunum í Grikklandi og Masedoníu.