Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Side 19
19
Jóltannes Krysostomus.
Krists heilaga lífemi er sú algjörða fyrirmynd, sem vér
syndugir menn eigum að líkjast og laga líferni vort eptir;
hans lieilagi lífsferill er sú leiðarstjarna, sem á að lýsa
og Ieiðbeina oss á þessari jarðnesku vegferð vorri. En
jafnframt er það næsta lærdómsríkt fyrir oss og miðar
til að styrkja trú vora, að virða fyrir oss æflr þeirra
manna, sem hafa barizt hinni góðu baráltu trúarinnar,
og unnið sigur yfir sjálfum sér og heiminum og um
leið verið útvalin verkfæri í hendi Drottins til að út-
breiða hans riki hér á jörðu.
Með þessháttar mönnum má telja Jóhannes Iíry-
sostomus kirkjuföður. Hann er svo merkur og nafn-
togaður maður I sögu kristilegrar kirkju, að gjöra má
ráð fyrir, að mörgum muni þykja fróðlegt að kynna sér
æOsögu hans.
Jóhannes, sem kallaður var Krysostomus, eða gnll-
munnur, sakir málsnildar sinnar, var fæddur í Antíokkíu
á Sýrlandi hér um bil 347 árum eptir Iírists burð.
Faðir hans hét Sekúndus og var riddaraliðs foringi, en
móðir hans hét Antúsa. Föður sinn misti hann í æsku,
og næst Guði er það móður hans að þakka, að hann
varð svo mikill og nafnfrægur maður. Móðir hans varð
ekkja um tvítugsaldur, en vildi aldrei giptast aptur,
heldur varði öllu lííi sínu til að uppala og menla son
sinn; en umfram allt lét hún sér annt um að innræla
honum þekkingu á kristindóminum og elsku til Iírists.