Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Page 43
43
konur, ríkir og fátækir sátu hverjir hjá öðrum og Iærðu
að lesa, skrifa og reikna og á stuttum tíma urðu þeir
vel læsir. Til þessa hjálpaði það mikið, að Ellis kristni-
boðari hafði slofnað þar prentsmiðju og var í henní
prentað stafrofskver og Lúkasar guðspjall, sem Nott
hafði snúið á Tahitiska túngu. Fjöldi presta kom til
Najatea frá nálægum eyum og beiddi um aðstoðarmenn
í krístniboðinu; stakk þá Tauuiatóa upp á því, að þeir
skyldu stofna kristniboðarafélag og þótti Vilhjálmi mjög
vænt um þetta; en hafði ekki sjálfur viljað fara því
fyrst á flot. Til að ræða þessa uppástúngu var haidin
fjölmenn samkoma og fór þar allt mjög skipulega fram.
Taumatóa var forseti og hóf fundinn með svofelldum
orðum: «hugsið til þess, hvernig þér hafið þjónað fals-
guðum og selt þeim í hendur ailar eigur yðar. Áður
voruð þjer þrælar; en náðarboðskapur Iírists hefir gjört
yður frjálsa. Hjá oss eru kennendur, sem af með-
aumkun við oss hafa yfirgefið átthaga sína; látum oss
þá einnig kenna í brjósti um önnur lönd og styðja að
frelsi þeirra það sem í voru valdi stendur. Gefið það
sem þér megið án vera; en þólt þér ekkert viljið gefa,
þá óttist ekki fyrir því, að yður verði hegnt, eða að
þér verðið drepnir eins og áður. Sérhver gjðri það
sem honum þykir rétt vera». t*á stóð annar upp og
mælti: «vér vitum allir, að ekkert skip getur hreift sig
í logni; en nú eru peníngar eins ómissandi fyrir kristni-
boðsfélagið eins og vindurinn er fyrir skipið; látum oss
því gefa það sem ver getum». Kristniboðsfélag var nú
stofnað og árið 1820 var heill skipsfarmur af kókusolíu
sendur til kristniboðsfélagsins í Lundúnum, sem seldi
liann fyrir 20000 rd.
Sama ár voru hinir fyrstu menn þar, 70 að tölu