Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Blaðsíða 80
80
Fundur sá, er haldinn var að þingvöllum 26.—30.
dags Júnímánaðar næstliðið ár, sendi bisknpinum ávarp
viðvíkjandi guðsþjónustugjörð um land allt einn vissan
dag sumarið 1874 í minningu þess, að landið hafl þá
verið byggt í 1000 ár. Biskupinn bar ávarp þetta
undir álit synodusar og féllst hún á, að haganlegast
mundi vera, að til þessa væri ákveðinn einhver virkur
dagur í síðari hluta Júlímánaðar eða fyrri hluta Ágúst-
mánaðar; að öðru leyti fól synodus biskupinum áhend-
ur að gjöra uppástungu til konungs um mál þelta.
Eptir að biskupinn síðan hafði borið mál þetta undir
kirkju- og kennslustjórnina, hefir hún 10. Sept. f. á.
gefið út svolátandi auglýsingu:
»Samkvæmt uppástungu kirkju og kenslustjórnar-
innar heör Hans Ilátign konungurinn 8. þ. m. allra-
mildilegast fallizt á, a ð haldin verði opinher guðsþjón-
ustugjörð á öllu íslandi árið 1874 í minningu þess, að
ísland þá hefir verið byggt í þúsund ár, a ð guðsþjón-
ustugjörð þessi skuli fram fara í öllum aðalkirkjum
landsins í lok júlírnánaðar eða í byrjun ágústmánaðar
á þeim sunnudegi, sem biskupinn yfir íslandi nákvæmar
tiltekur, en í aukakirkjunum næsta sunnudag eða næstu
sunnudaga eptir, og að biskupnum sé falið á hendur
að ákveða texta þann, sem leggja skuli út af við tjeða
guðsþjónustugjörð, og að gjöra þær ráðslafunir, sem að
öðru leyti með þarf i tilefni af þessu.
Eptir þessu eiga allir hlutaðeigendur sér að hegða.«
Samkvæmt konungsúrskurði þessum iiefir biskup-
inn í bréfi til allra prófasta á landinu, dags. 25. okt.
f. á., ákveðið, að hin umrædda guðsþjónustugjörð skuli