Óðinn - 01.01.1934, Page 9
ÓÐINN
ð
Or fornsögu Vesturheims.
Quetzalcoatl. —
Ðjörn BreiÖvíkingakappi.
í ágripi þvi, sem til er af trúarbragðasögu
Azteka, þar sem lýst er átrúnaði þeirra, er
0uetzaIcoatl sá guðdómur er öðrum fremur
hefur munnlega sögu að baki sjer. Hann var
sá guðdómur, er kendi mönnum að hagnýta
sjer málma, kendi akuryrkju og ríkisstjórnar-
þekkingu. Hann mun hafa verið einn þeirra
velgerðamanna mannkynsins, sem afkomendur
hafa tilheðið af innilegri þakklátsemi. Fyrir veg-
lyndi hans hlómgaðist jöiðin og bar margfaldan
ávöxt. En einhverra hluta vegna varð Quelzil-
coatl fyrir reiði yfirguðsins, svo að hann varð
að yfirgefa landið. Á leið sinni til strandar kom
hann við í Cholulaborg, og dvaldist þar í tult-
ugu ár, til þess að fræða Tolteka, þá er þar
bjuggu, um ýmiskonar akuryrkju og menningu,
svo og benda þeim á betra stjórnarfyrirkomu-
lag og andlegri trúfræði, en fórnir þær, sem
færa skyldi þessum guði, voru aðeins blóm og
ávextir. í hverju kenningar hans voru fólgnar er
ekki fyllilega ljóst, en það er talið víst, að hann
hafi verið óvanalega vel gefinn maður, því eftir
að hann hafði dreift aldamyrkri úr hugum
þjóðflokks þess, er hann umgekst, varð hann
átrúnaðarguð þakklátra síðari tíma kynslóða,
og tákni hans ætlað sæti meðal stjarna i himin-
geimnum. Til dýrðar þessum guðlega velgerða-
manni bygðu þeir veglegt minnismerki, en það
líkist helst fornum mannvirkjum í Egiftalandi.
Það var bygt að formi til eins og teocallar (þ. e.
guðshús) eða turnbyggingar alment í Mexiko, en
þær eru snubbóttur pýramidi, sem snýr fjórum
hliðum að höfuðáttunum, en upprunalegt frum-
letur þessa minnismerkis er máð burtu af tím-
ans tönn. Bygging þessi er eitt hundrað tuttugu
og sjö feta há, en við jörðu er hún fjórtán
hundruð tuttugu og sjö feta löng, eða helmingi
lengri en Cheops-pýramidinn mikli. Menn geta
gert sjer dálitla hugmynd um unimál hennar,
er þeim verður það Ijóst, að grunnflöturinn,
sem er ferstrendur, er um tuttugu og fjórar
ekrur, og að snubbótti toppurinn er meira en
ekra að rúmmáli. Efst á toppi byggingarinnar
var skrautlegt hof, en í því var mynd af þess-
Ólafur Finsen læknir.
Hann átti 40 ára starfsalmæli 13. janúar síðastliðinn.
Allan pann tíma hefur hann dvalið á sama stað, var
fyrst aðstoðarlækn-
ir og síðan hjeraðs-
læknir á Akranesi
og hefur aldrei sótt
um annað embætti,
enda hefur hanu
frá fyrstu notið
par almennra vin-
sælda bæði sem
læknir og maður.
Ólafur er elsti son-
ur Ó, Finsens, sem
lengi var póstmeist-
ari hjer í Reykja
vik, og er kominn
af hinni frægu Fin-
sensætt, sem alið
hefur marga ágætís-
menn, eins og kunn-
ugt er. Nafnið er
frá Finni biskupi
Jónssyni í Skálholti.
Ólafur læknir er kvæntur Ingibjðrgu Isleifsdóttur fyrr-
um prests í Arnarbæli, systur Gísla heitins ísleifssonar
skrifstofustjóra. Á 40 ára starfsafmæli Ólafs læknis
sendu hjeraðsbúar nefnd á fund hans, sem færði hon-
um skrnutritað kvæði, eftir Porstein Jónsson á Grund,
og 900 kr. minningargjöf.
um guði, er hafði íbenholts-svartan svip, gagn-
stætt þeim hvíta hörundslit, sem hann hafði
hjer á jörðu. Þá hafði hann djásn á höfði með
blaktandi eldfjöðrum, skrautlega gullfesti um
hálsinn, fagurt tyrkjasteins- og steintígla-skraut
í eyrum. Gimsteinum skreyttan veldisprota hafði
hann í annari hendi, en í hinni bar hann kyn-
lega málaðan skjöld, er var líkingamynd af valdi
hans yfir vindum loftsins. Heilagleiki staðarins,
sem æfagamlar sagnir juku mjög á, og skraut-
legar guðsþjónustur gerðu og mikið til að vekja
eftirtekt fjöldans, leiddu og til þess að fólkið
fjekk lotningarfulla tilheiðslu fyrir honum hvar-
vetna um Iandið, svo að pílagrímar streymdu
þangað úr fjarlægustu útkjálkum Anahuac, til
þess að biðjast fyrir við altari Quetzalcoatls.
Cholulaborg var það, sem Mecca er meðal Mú-
hameðstrúarmanna eða Jerúsalem fyrir kristna
menn, það var hin heilaga horg í Anabuac.
Þegar svo Quetzalcoatl kom að lokum til
strandarinnar við Mexikoflóa, kvaddi hann fylgd-