Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1882, Síða 15

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1882, Síða 15
í Bisk. 2, 178 eru fimm vísur dunhendar át í gegn eptir Einar Gilsson (á 14. öld), um kraptaverk G-uðmundar biskups góða, en dunhendunnar er eigi vel gætt allstaðar. Klifað (48) og iðurmœlt^47) eru líkir hættir, nema hvað hendingar standa tvær og tvær saman í iður- mæltum hætti, enfjórar og fjórar iklifuðum; iðurmælt er því fjórsett, en klifað tvísett. þess konar hend- ingasetningu bregður stundum fyrir, t. a. m. vísan sem Hrafn kveður i draumi: Roðit sverð en sverða sverðrögnir mik gerði varu reynd í röndum randgalkn fyr ver handan. blóðug hykk í blóði blóðgögl of skör stóðu, sárfíkinn hlaut sára sárgammr en á þramma. (Gunnl. c. 13), en þó er hér eigi allt rétt, því í 3. vísu-orði er skot- hending, og 3. og 4. vísu-orð gjöra eigi samhending- ar; 8. vísu-orð er eigi rétt, því afhendingu er eigi haldið. Hálf vísa iðurmælt er í draumi Stjörnu-Odda: geirviðr of vá geiri geirvaldr í klökk þeiri blóðör sá ek í blóði blóð stökk um skör þjóða. Egill byrjar eina vísu eins og hún annaðhvort eigi að vera iðurmælt eða klifuð: öl bar mér því at Ölvi öl gjörir nú fölvan (cap. 44), en siðan er dróttkveðið. — þegar Ólafur Tryggvason sagði við Hallfreð, hvort hann mundi „kunna að yrkja vísu, svá at nefna sverð í hverju vísu-orði“ (Fms. 2, 56), þá kveður Hallfreðr fyrst eins og vísan ætli að

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.