Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 54

Eimreiðin - 01.01.1898, Síða 54
54 ást vora. Það hafði Alexander Kielland sýnt, — og fyrir það varð hann sekur. Astandið var illt viðureignar; allt það, sem skelkaðir aptur- haldsmenn áttu til af ugg og einlægri óánægju, lagðist að glæsilegu skútunni hans og skrílshátturinn og heimskan umhverfis. Þegar jeg tala um skrílshátt, á jeg ekki við þau vesalings afhrök mann- fjelagsins, sem skammast og berjast fyrir lífi sínu úti hjá sorp- haugunum, eina staðnum, sem vjer höfum látið þeim frjálsan. Jeg á við skríl yfirdrepskaparins og þeirra, sem eru að reyna að koma sjer i mjúkinn með því, að slá þjóðinni gullhamra og smjaðra fyrir kónginum. Jeg á við hinar óhreinu hvatir í listum og viðskipta- lífi. A hinni helzt til hefðarlegu skútu stóð sá maður í lyptingu, sem hafði gert þeim öllum harða hrið, þá er sveið; þarna höfðu þeir loksins fengið færi á honum! Johan Sverdrup, helzti þjóð- málagarpurinn, sem Noregur hefur átt, var stjórnarforseti; hann • hafði uppskorið, þar sem Alexander Kielland hafði sáð. Fyrir stjórnvaldalegs ávinnings sakir afneitaði hann einnig, þegar mest reið á, þeim manni, er í bókmenntunum má kalla »riddarann án uggs og ávirðinga«. Hve margir Alexander Kiellands líkar eiga hjer að lúta að velli, áður en búið er að hreinsa siðferðistilfinningu stjórnmálagarpanna ? Jeg nefndi líka heimskuna; vjer erum sem sje þjóðarungviði, sem ekki hefur neinar erfikenningar við að styðjast, þar sem um list er að ræða; jafnvel vinir hans, sem dáðust að honum, skildu ekki til fulls, hvað hann var. Þá rjeði sem sje stefna náttúru- hyggjumanna ein lögum og lofum; og sljóvum skilningi margra var n'óg boðið, þegar hann að sið háðmyndagerðarinnar, sem dregur saman allt hvað af tekur, sýndi með örfáum strikum meira en þeir, sem sátu kófsveittir við litaspjaldið í þrjá sólarhringa. En stíllinn? Kunnu menn þá ekki að meta stílinn hjá honum ? Setjið þið dýrasta postulín fyrir óbrotinn Norðmann, sem ekkert tæki- færi hefur fengið til samanburðar og gjörskoðunar, — honum mun virðast uppdrættirnir á því heldur lauslegir og litirnir sæmi- lega óákveðnir. Hvað veit hann um það, að Frakkar telja brjef madame de Sévigné til þess, sem ágætast er í bókmenntum þeirra? Að brjef Alexander Kiellands ein mundu nægja til að gjöra hann ódauðlegan (flest þeirra eru ekki enn þá komin fyrir almennings sjónir). Af tilvitnun þeirri, er jeg hef til fært hjer að framan, má renna grun í, hvílíkum sjóði af andríkum bróðernisgáska sá maður

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.