Eimreiðin - 01.01.1903, Blaðsíða 45
45
Bréf Geirs biskups Vidalíns 1809.
Eftir prófessor dr. RUDOLF MEISSNER.
P'yrir nokkru síðan fann prófessor Wilhelm Meyer innan í
spjöldum á einu eintaki af Hóla-bihlíunni, sem er eign háskóla-
bókasafnsins í Göttingen, bréf á íslenzku, sem losa mátti í heilu
lagi, og var mér fengið bréf þetta til rannsóknar og álita. Bréfið
er tvö samstæð blöð í arkarbroti; það er á einstökum stöðum
mölétið og að nokkru leyti orðið óskýrt sökum límsins, sem bor-
ið hefir verið á það, en þó yfirleitt vel læsilegt. Á undirskrift-
inni sést, að bréfritarinn er Geir Vídalín og að það er til ein-
hvers prests, sem heitið hefir síra Eggert1. Bréfið hlýtur að
vera ritað í Reykjavík, skömmu eftir n. janúar 1809. Um það
leyti bárust fregnir dræmt — ákaflega dræmt — til hinna fjar-
lægu stranda Islands. Fréttabálkurinn byrjar með því, að segja
frá dauða Kristjáns VII., og þá var þó næstum liðið heilt ár frá
því stjórnarskiftin urðu í Danmörku Fyrst í janúar 1809 fá menn
í Reykjavík nokkrar fregnir af uppreist Spánverja gegn alvaldi
Norðurálfunnar. Bréfið bregður upp fyrir oss snoturri mynd at
tilfinningalífi manna á löngu liðinni tíð, þegar alt var á tjá og
tundri. Hið voðalega umrót hefir þá líka náð til hins afskekta
eylands í Norðuríshafinu, svo að einnig þar má sjá þess merki.
Enski skipstjórinn, sem hótar að skjóta á Reykjavík og brenna,
ef hann ekki fái að selja sínar dýru og slæmu vörur, hefði orðið
að réttlæta sig með því, að hann beitti þessari ógnun við bæ,
sem stóð í bandalagi við Napóleon.
Velæruverdugi ástkiæri Prestur minn! Fyrir laungu er eg viss um,
ad þér erud fallinn upp á þann þánka, ad eg sé annadhvört med öllu
búinn ad leggia frá mér Blek og Penna, edur og ad eg hafi gleimt
ydur med öllu, þar eg allt til þessa hefi golldid tómri þögn vid ydar
elskulega bréfi í haust og hvörki þackad þad né því fylgiandi nærsta
kiærkomna, enn hellst ofstóra sendingu. Ad aísaka mig fyrir þessari
óforsvaranlegu Penna-leti, væri ad bœta gráu ofan á svart, og ætla eg
því ad láta þad vera, og nú þá um sídir þacka ydur af hiarta bædi
bréfid, sendinguna, samt alla ydar forna og nía ástúd. — Mér, og
ocku. hér í Húsi lídur öllum bœrilega; eg er heill á höndum en
allt af nockud hrumr í Fœti, svo eg óttast, ad hann ecki dugi til
töluverdrar áreinslu. Vid höfum og þad naudsynlega til Fata og mat-
1 P. e. síra Eggert Guðmundsson, prestur í Reykholti frá 1807.—1832, en áð-
ur á Gilsbakka írá 1796—1807 (sbr. niðurlag bréfsins). RITSTJ.