Eimreiðin - 01.05.1903, Page 6
86
stekkur, torfbær, ekki gamall. Góðum spöl innar er Bræðra-
borg, yzt húsanna, og Hjarðarholt næst. Þar er Sigvaldi
póstur, einkennilegur skeggkarl og fer sinna ferða. fau hús eru
hvorugt gamalt Nokkru innar er Líverpól. Par bygði Svein-
bj. Jacobsen fyrst 1871 og verzlaði þar til '82. Pá keypti Gránu-
fél. húsið og verzlar þar um stund, en reif það ogflutti út á Vestdals-
eyri, þegar hús þess þar brann um 1895. Á þeirri tóft reistu þeir
Johansen og Stefán Th. Jónsson það vöruhús, sem nú er þar, og
gerðu góða hafskipabryggju fram af; hina einu norðan fjarðar.
Seyðisfjörður.
Imslandsbúð er næst neðan götu og lítil bátabryggja fram
undan. Bað hús bygði G. A. Jonassen frá Stafangri til verzlunar
1882 og var T. L. Imsland, »kafteinn«, verzlunarstj. hans, en
keypti síðan alt saman og hefir nú fengið Lars syni sínum í hend-
ur. Það er lítil verzlun og mest við Færeyinga. Innan við er
Skaftabær, lítill torfbær og Skafti gamli í; hann ber vatn fyrir
menn og gerir margt þarft, er lágur vexti og vaggar undir vatns-
skjólunum og svo góðlyndur, að við hann er enginn maður önug-
ur. Ofan götu er þar Norskabúðin. Hana bygði I. M. Han-
sen, konsúll, 1881 og verzlaði þar fyrst sjálfur. Svo tók þar við
félag frá Stafangri til '87 og seldi þá alt sitt, og keyptu húsin