Eimreiðin - 01.05.1903, Side 21
IOI
ið, oft mörg kvöld og tekist oftast mikið fremur vel og hefir það
slitið vel í sundur skammdegið. Hæfileikar til leikmensku hafa
þó ekki komið hér fram, sem sérstök ástæða sé til að nefna.
Kvenfélagið »Kvik« hefir og haldið skemtanir tvo síðustu vet-
urna og farist vel, verið tjörmeira og auðugra að tilbreytingum en
aðrir hafa áður verið, og hefir það félag orðið vinsælt, að minsta
kosti tala karlmennirnir vel um það.
fá halda heldri konur bæjarins, giftar og ógiftar, hér barna-
hátíð hvern vetur og hafa lengi haldið. Er þangað boðið öllum
börnum ríkra manna og óríkra og hefir þar oft verið saman kom-
ið um og yfir ioo barna, og hafa þau skemt sér vel við dans um
jólatré, gjafir og veitingar, en fullorðna fólkið hefir horft þar á
börnin og hvað á annað og gert sér hátíð úr. Blysgöngur og
álfadans eru hér oft á Gamlárskvöld eða Prettánda og oft kostað
töluverðu fé til og er góð skemtun. Skautasvell er hér ekki til
nema lítið og ilt á ánni og nota börn það eftir mætti. Árið sem
leið léðu Garðarsmenn ístjarnir sínar til skautaleika, og getur þar
orðið hinn bezti skautaís og verður vonandi notaður.
Kannske má telja það til skemtana að menn fara hér mjög
á vetrum til rjúpnadráps og kalla »að fara á skyttirí«. Pær
skemtanir sækja ýmsir rosknir menn og börn, sem úr byssu
kunna að hleypa. Arðurinn er fremur lítill og því ber að telja
þetta til skemtana. Vængskotnar og fótlamaðar eða sárar rjúpur
verða því hér eins ög annarstaðar árangurinn af því, að börn
og viðvaningar fara með byssur.
Leikfimi hafa ungir menn töluvert æft hér suma vetur og
hefir verið góð skemtan að horfa á þá leika listir sínar. Par hafa
þeir leikið liðlegast Friðrik Gíslason úrsmiður, Rolf Johansen og
Sigurður Jónsson og leikið svo þróttmikið og fimlega að gott var
í hvern stað, einkum leikur þeirra Friðriks og Hrólfs. Jörgensen
bakari hefir kent hér leikfimi og að líkindum komið henni hér á
gang. Hann er hraustmenni og fimur.
Bezt af öllum skemtir hér á vetrum sunnanáttin þegar hún
kemur. Hún breytir á einu dægri 12—14 stiga frosti í 9 stiga
hita, og menn ganga út snöggklæddir og berhöfðaðir til að
fagna henni, eins og þar kæmi vor eða vinur. Norðanveðrin eru
ekki eins skemtileg. Pau koma ýmist innan úr dalnum og sópa
öllu lauslegu sem fyrir verður út á fjörð, eða þá úr landnorðri
fyrir austan Bjólf niðurVestdal og Hrútahjallana, og eru það köll-