Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 29

Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 29
109 efnahagxir manna lagaöist mikið. í heild sinni er æfi verkmanna hér ill. I’eir fá oft helzt atvinnu, sem skulda í búðunum, og verzl- ununum er aldrei ráðafátt, að halda þeim mönnum í skuldum, sem þær hafa hag á. Samtök milli verkmanna hafa verið reynd og stofnuð svo hóflega, að sumir vinnuveitendur sáu þar jafnvel hag sinn trygðan og hlúðu að samtökunum, en það varð þó ofan á, að þau slitnuðu, því þeir urðu fleiri, sem neyðin og náttúrufarið hötðu fastari tök á en félagarnir. Hingað koma og margir menn að leita sér atvinnu, helzt af Suðurlandi og er það mest til út- vegsmanna bæði í bænum og einkum úti í firðinum. Hér hefir þessi árin verið mjög mannmargt á sumrum. Hér er og tölu- verður áhugi á jarðrækt og búið að gera að túnum og girða mest af mýrunum inn með ánni báðumegin. Kaupgjald hefir verið hér hátt þessi ár, eftir því sem annarstaðar gerist, alt að 45 aurum um tímann stundum, og oft mannskortur. Verzlun er hér í heild sinni ekki slæm og ýmsar nauðsynja- vörur hafa oft verið ódýrri hér en víðast annarstaðar á landinu. Kol hafa t. d. kcstað hér eyri pundið, þegar þau hafa kostað 11ji og H/a í Reykjavík, en hér er oft vöruskortur, svo að nálega vantar alt stundum, sem menn þurfa sér til bjargar. Svo hefir það verið núna sum síðustu árin. Annars er hér kostur á flestu því, sem siðaðir menn telja sér nauðsynlegt. Fötin fáum við hjá Eyjólfi Jónssyni og þykja þau fara vel hjá honum, en það, sem til þeirra er lagt, fer auð- vitað eftir verðinu. Hann hefir og ljósmyndastofu, svo menn geta látið mynda sig í nýju fötunum. Skór fást hér laglegir í skó- smíðaverkstofunni nýju, en traustir hafa þeir ekki reynst mér. Ur og aðgerð á þeim fæst á úrsmíðastofum þeirra Stefáns og Friðriks og svona mætti telja upp alt, sem manni dettur í hug, málafærslu og meðöl, spítala og legstað, því bærinn á sjálfur kirkjugarð hér inni á mýrunum. íshús er hér og reykingahús. Paö á Imsland gamli og reykir ágætavel. Hér þarf því enginn maður að éta úldinn mat fremur en hann vill. Líðan manna er hér í heild sinni víst ekki slæm nú á þess- um árum, og það segja kunnugir menn, að skortur og fátækt sé hér minni en sumstaðar annarstaðar, og þó er hvorttveggja ærið nóg. Samgöngur eru hér góðar við útlönd, svo að við fáum

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.