Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 53
'33
rennur f’úfuverskvísl frá austri og út í Þjórsá. Er sú kvísl töluvert at-
hugaverð, með því bakkar hennar er mjög blautir. Er þá haldið í
austur fram með henni, unz komið er að dálitlum fossi, sem fellur
niður basaltkletta. Er bezt að fara yfir hana á grýttu vaði rétt fyrir
neðan fossinn. Skömmu síðar koma menn að tjaldstað, þar sem sjá
má fjárrétt, sem gangnamenn úr Rangárvallasýslu nota i fjallgöngum
á haustin. Þar er gras og víðir. Hálfri stundu síðar koma menn að
Sóleyjarhöfða, sem er löng hæð eða höfði fram með Þjórsá.
Frá Eyvindarveri að Sóleyjarhöfða 2 st. reið.
Suðvestan við höfðann er vaðið, eina vaðið á Þjórsá áður en
kemur niður í bygð fyrir sunnan. Er þar riðið frá eystri bakkanum
út f lítinn hólma og þaðan yfir að vestri bakkanum. Á öllum þrem
stöðum eru vörður, sem sýna hvar ríða skal. Austurállinn er mjórri,
en dýpri. í leysingum á vorin og þegar miklir hitar ganga er vaðið
ófært. Fyrir vestan vaðið er graslendi og kofi.
Sé Sprengisandur farinn í gagnstæða átt (frá suðri til norðurs), er
farið fram með Þjórsá að austan, milli Hofs- og Tungnafellsjökuls.
Miðja vegu milli jöklanna sést Fjórðungsalda eins og flöt hæð, sem
rís upp úr sléttunni. Menn ríða vestan við hana. Frá Fjórðungsöldu
halda menn í landnorður að Kiðagili o. s. frv.
II. Leiðin vestan Þjórsár ofan í Árnessýslu.
Frá Sóleyjarhöfða er haldið áfram í útsuður, stöðugt fram með
Þjórsá. Þá er farið yfir þessar ár: Knífá, sem stundum er ill yfir-
ferðar (1 st. reið); Kisá, sem kemur undan Kerlingarfjöllum og ber
fram jökulvatn og hefir því blautan og kvikan leirbotn (2 st. reið);
Miklalæk ^/2 st. reið; svæðið milli hans og Kisár er kallað Kjálka-
ver og eru þar hagar); Dalsá (il/2 st. reið; svæðið milli hennar og
Miklalækjar heitir Loðnaver og eru þar góðir hagar). —
Frá Sóleyjarhöfða að Dalsá 5 st. reið.
Frá Dalsá er haldið áfram að Geldingsá (i1/^ st. reið), þaðan
að Gljúfurá (1 ^/2 st. reið), Blautukvísl (il/2 st, reið, —- á milli
Gljúfurár og Blautukvíslar heitir Starkaðsver), efri Skúmstungnaá
(ix/2 st. reið), neðri Skúmstungnaá (1 st. reið, — milli þeirra heitir
Skúmstungur og er þar kofi og góðir hagar).
Frá Dalsá í Skúmstungur 7 st. reið.
Héðan er sveigt frá Þjórsá meir til útsuðurs yfir fell eitt, Sanda-
fell, að Rauðá (: st. reið); síðan er farið fram hjá gili með fossi,
högum og fjárrétt (1 st. reið). Þá kemur Fossá (x/2 st. reið) og er
þá komið inn í Þjórsárdal með mörgum ayðijörðum og bæjarrústum,
sem Bruun rannsakaði 1896. Þá er haldið að Sandá (1 st. reið).
Vestan árinnar sjást aftur brekkur, vaxnar skógi, og eftir l/2 stundar
reið koma menn að endastöð leiðarinnar, bænum Skriðufelli.
Frá Skúmstungum að Skriðufelli 4 st. reið.
III Leiðin austan Þjórsár ofan í Rangárvallasýsln.
Frá Sóleyjarhöfða að Tungnaá 2 daga ferð.
Leiðin liggur yfir sanda svipaða Sprengisandi, eí til vill nokkru
öldóttari. Það er riðið fram með Þjórsá að austan, en þó fyrst um