Eimreiðin - 01.05.1903, Side 65
um. En þetta eru alt smámunir. Þýðingin er, eins og ég hefi áður
tekið fram, yfirleitt einkar-nákvæm og vönduð að öllum frágangi.
Með Jóhannesar guðspjalli er lokið þýðingunni á öllum guðspjöll-
unum. Þau eru seld sérstök, og verð hvers þeirra er aðeins 10 —15
aurar. Hvert heimili á íslandi ætti auðvitað að kaupa smákver þessi.
Því nokkur ár hljóta að líða, áður en öll ritningin kemur út í nýja
íslenzka búningnum sínum.
f’eir menn, sem vinna að íslenzku þýðingunni á gamla og nýja
testamentinu, eiga beztu þakkir skildar fyrir allan starfa sinn. Það
væri óskandi, að alþingi í sumar sæi sér fært að veita íslenzka biblíu-
félaginu ríflegan fjárstyrk til þýðingarinnar, og vonandi, að það verði.
SKÝRSLA UM PRESTASKÓLA ÍSLANDS skólaárin 1897—
1898, 1898—1899, 1899—1900, 1900—-1901, 1901—1902. Reykja-
vík 1902.
Skýrsla þessi, sem nær yfir 5 skólaár, er 20 blaðsíður að stærð.
Hún er í 8 köflum.
í 1 kaflanum er getið um 50 ára afmæli prestaskólans og há-
tíðaliald, sem þá fór fram í skólanum (1. okt. 1897). í 2. kaflanum
eru stúdentar á skólanum taldir upp. Þeir hafa verið 7—9 á ári
hverju.
3. kaflinn er um kennara skólans og kensluna. Aðalkennarar
skólans eru aðeins þrír: lect. theol. síra Þórhallur Bjarnarson (for-
stöðumaður skólans), síra Jón Helgason og síra Eirikur Briem. Kensl-
unni er svo raðað niður, að á hverjum 3 árum er farið yfir alt það
sem á að lesa, samkvæmt reglugjörð skólans. Að vöxtunum til er
það miklu meira verkefni, en guðfræðiskennarar við háskólann í Höfn
leysa af hendi á jafnlöngum tíma. Prestaskólinn hefir yfirleitt aldrei
átt betri og kostgæfnari kennara en um þessar mundir. Þeir Ieysa
rösklega og vel af hendi margbrotin og yfirgripsmikil störf.
í 4. og 5. kaflanum er skýrt frá fjárstyrk þeim, sem veittur er
nemendum skólans, og sjóðum, sem eru í sambandi við skólann. Á
þessum 5 árum hafa allir nemendurnir fengið húsaleigustyrk (80 kr.)
og annan námsstyrk (upp að 200 kr.). Auk þess hafa sumir þeirra
fengið styrk af vöxtum prestaskólasjóðanna. Styrkur sá, sem hver
nemandi hefir fengið á ári, er frá 140 kr. til 330 kr. — Minningar-
sjóður lectors Helga Hálfdánarsonar var í árslok (1901) 613 kr. 3 a.
Verðlaunabækur, keyptar fyrir vexti þess sjóðs, hafa 4 stúdentar fengið.
6. og 7. kaflinn er um próf þau, sem haldin haja verið við skól-
ann á þessum 5 árum. Tala þeirra stúdenta, sem tekið hafa próf í
»forspjallsheimspeki«, er 21. Við þau próf virðast stúdentar frá presta-
skólanum að hafa fengið yfirleitt hærri einkunnir en stúdentar frá
læknaskólanum. — Á sama tíma hafa 11 kandídatar tekið embættis-
próf í guðfræði við prestaskólann. 1 þeirra hefir fengið ágætis-einkunn,
4 fyrstu einkunn og 6 aðra einkunn.
í 8. kaflanum er skrá yfir bækur þær, sem bókasafn skólans
hefir féngið að kaupum eða gjöf 1897—1902. Safnið hefir aðeins 300
kr. til bókakaupa á ári. Fé það er eigi mikið, en vonandi verða þeir
menn ávalt fleiri og fleiri, sem senda safninu bækur að gjöf. //. P.
----------- 10