Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 76

Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 76
mættust — eins og náskyldar sálir einar geta mæzt; og sjá: Pá rann sólin upp.------ V. Kærleikurinn er eilíft vor. Hann lífgar og græðir — annast bæði heilt og sjúkt. — Kærleikurinn elskar alt; ekkert er hon- um viðurstygð. — Hann megnar ekki að halda uppi virðingu mannsins fyrir sjálfum sér — kann ekki að gera hinn glögga grein- armun góðs og ills. — — »Guð er heilagur«. — Af öllum eiginleikum guðs finst þér mest til um þenna: að hann er laus við synd. Og þetta er viðurkenning —- ósjálfráð viðurkenning þess, að réttlætið sé hin æðsta dygð. —- Réttlætistilfinningin stefnir beint á sól. Hún hatar alt, sem horfir frá uppsprettu lífsins; dæmir alt, sem fúið er og dautt. — Hún er manninum hið sama og stofninn trénu: — megnar ein að gera andann styrkan og beinvaxinn.--------------- — — Pér er sagt, að lífið sé efnabreyting, barátta, starfsemi og ýmislegt fleira og enn þá fráleitara. En ég segi þér: Lífið er ekkert af þessu; þetta eru undirstöður lífsins, en ekki lífið sjálft. Hið sanna líf er: innilegur fagnaður og gleði. — — Þú vinnur öllum stundum fyrir þínu líkamlega lífi og hygst að öðlast hið andlega líf baráttulaust eða baráttulítiö fyrir »guð- lega náð«. En ég segi þér: Af öllum gæðum er hið sanna líf allra dýrkeyptast. Auðmýkt — gagnvart hinum mikla höfundi, vandlætingasemi gagnvart sjálfum þér, starfsaman kærleika — gagnvart meðbræðr- um þínum, — alt þetta kostar hið sanna líf. »Þröngur er sá vegur, sem til lífsins leiðir, og fáir þeir, sem hann rata«. Vita skaltu það, að hann verður breiður. En þá, sem brautina ryðja, kostar það mikla baráttu, mörg mistök og mikla sorg. — — — — — Þráin eftir hinu sanna lífi er undiraldan í allri fram- sóknarviðleitni mannkynsins. — Þegar réttlætistilfinningin hreinsar þessa þrá og stælir, þegar kærleikurinn frjóvgar hana og vizkan leiðir hana, þá — og einungis þá — framleiðir hún hinn stóra mann

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.