Eimreiðin - 01.05.1904, Page 15
95
Ég vil frelsi míns lands,
ég vil farsæld míns lands,
ég vil frægb þess og gnægð þess og auð þess og völd;
ég vil heiðursins krans
leggja að höfði hvers manns,
sem vill hefja það fram móti batnandi öld.
6.
Petta er játningin mín,
kæra móðir, til þín,
ég get miklast af því, að ég sonur þinn er;
það er svipurinn þinn,
er í sál mér ég finn;
hann er samgróinn öllu því bezta hjá mér.
7-
Ég kem fram á þinn fund
þessa fagnaðarstund
eins og frjálsborinn sonur, sem elskar þig heitt,
og að fótum á þér
ég sem fórn mína ber
það, sem fegurst og bezt hefur lífið mér veitt.
Aths. fietta kvæði eftir Guðm. Magritísson er tileinkað þingmönnum á
alþingi 1901, og er prentað í lieild sinni bæði í Fjallkonunni sama árið og í
kvæðabók Guðmundar 1903.