Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Síða 28

Eimreiðin - 01.09.1914, Síða 28
184 Um vínanda og áfenga drykki. Eftir VALD. ERLENDSSON, lækni. Áform mitt og tilgangur með þessari jitgjörð er, að skýra fyrir mönnum nokkur atriði, er snerta áfengi og nautn þess, eðli þess og áhrif á mannlegan líkama. En þetta verkefni er svo vandasamt og yfirgripsmikið, aö ég veit, að það verður ekki vel af hendi leyst, enda ómögulegt að skrifa ýtarlega um þetta mikla málefni í stuttri tímaritsgrein; því um þetta efni mætti rita og hafa verið ritaðar fjöldamargar bækur, heil bókasöfn. En skyldi mér takast að leysa úr nokkrum spurningum, er snerta vínanda og áfengisnautn, er tilganginum náð í aðalatriðunum. Heimildir þær, er ég styðst við í ritgjörð þessari, hef ég úr ýmsum eldri og nýrri bókum og ritgjörðum um þetta efni, og vil ég þá fyrst og fremst nefna bók um áfengisnautn skoðaða frá læknisfræðislegu sjónarmiði eftir Quensel, prófessor í læknisfræði við háskólann í Uppsölum, er út kom í fyrra sumar. Ennfremur hef ég stuðst við bækur og ritgerðir eftir þá yfirlækni V. Scheel, prófessor Knút Faber og prófessor Boeck í Kaupmannahöfn; sömuleiðis ýmsar kenslu- og handbækur eftir þýzka vísindamenn, t. d. Kræpelín, Mehring, Ziegler, Kaufmann og marga fleiri. Aðalorsökin til þess, að ég hef ráðist í að skrifa um áfengi, er æsingar bindindismanna, sem alstaðar, bæði á íslandi, í Danmörku og í flestum öðrum löndum eru jafneinstrengingslegar; því bindindismenn vilja hiklaust staðhæfa, að allskonar áfengi, hverju nafni sem nefnist og í hve stórum eða litlum skömtum sem þess sé neytt, sé altaf og undir öllum kringumstæðum skaðræð- is-eitur fyrir sál og líkama. Eg vil því frá vísindalegu sjónar- miði, svo skýrt sem auðið er í stuttri grein, sýna fram á, að þetta eru öfgar, sem hvorki styðjast við reynsluna né vísindalegar rann- sóknir og tilraunir seinni tíma. Pað er ekki meining mín að vilja halda hlífiskildi fyrir Bakkusi konungi að neinu leyti; því vitaskuld hefur hann komið ógnarmiklu illu til leiðar í heiminum. En ég vil reyna að dæma alveg hlutlaust (objektivt) um málið, og unna bæði bindindismönnum og þeim, er hafa gagnstæða skoðun, fulls sannmælis, og aðallega styðjast við rannsóknir nýrri tíma á á-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.