Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Page 41

Eimreiðin - 01.09.1914, Page 41
i97 er að flestum heilablóðföllum og hjartaflogum og ótal mörgum öðr- um meinsemdum, stafi að mjög litlu leyti frá áfengisnautninni. Áhrif áfengis á nýrun eru í byrjun aukning þvagsins. Að minsta kosti eykst þvagið að mun eftir litla eða miðlungi stóra skamta af víni; en eftir feikna-stóra skamta minkar aftur á móti þvagmyndunin. Annars má segja hið sama um áhrif vínanda á nýrun, sem sagt var um áhrif hans á hjarta og lifur, að þau eru aðallega í því fólgin, að drykkjumönnum er hættara við að fá nýrnabólgu og aðra sjúkdóma í nýrun, eins og þeir einnig voru næmari fyrir lifrarbólgu og hjartabilun, en bindindis- eða strangir hófsemdarmenn. Chonheim segir þó á einum stað í bókum sín- um, að langflestir þeirra drykkjumanna, er hann hafi rannsakað, hafi haft alveg ágæt og ósködduð nýru. Professor Quensel held- ur því einnig fram, að drykkjumenn fái tiltölulega sjaldan nýrna- bólgu, og segir ennfremur um þetta atriði: »Vér getum ekki með vissu dæmt um, hvort áfengisnautn leiði af sér nokkura sér- staka sjúkdóma í nýrunum, og frá vísindalegu sjónarmiði er þessi gáta enn að mestu óráðin«. Margir læknar og heilsufræðingar hafa bæði á fyrri og seinni tímum staðhæft, að mikil áfengisnautn rýrði mótstöðuafl líkam- ans gegn næmum sjúkdómum. Reynslan virðist og að sanna þetta. Lungnabólga og aðrir bakteríusjúkdómar virðast vera öllu hættulegri fyrir drykkjumenn en aðra. Strangar vísindarann- sóknir vantar þó enn um þetta. Menn greinir einnig á um, hvort réttmætt sé að gefa sjúklingum, er þjást af næmum sjúkdómum, áfengi í smáskömtum. Reynslan virðist benda til, að áfengisnautn sé skaðleg, þegar um taugaveiki (Tyfus), kóleru, heimakomu og nokkra fleiri næma sjúkdóma er að ræða. Aftur á móti halda margir læknar fram þeirri skoðun, að einn einstakur allstór skamt- ur af víni, er menn drekki í byrjun næms sjúkdóms, hafi oft gagnleg áhrif á rás sjúkdómsins og geri h'ann minna hættulegan. Gegn dái, sem eigi allsjaldan kemur fyrir í hættulegum bakteríu- sjúkdómum, geta eitt eða tvö staup af góðu víni haft mjög gagn- legar verkanir, og stundum frelsað sjúklinginn hreint og beint frá bráðum bana (sbr. próf. Óskar Blochs Forelæsn.). Smáskamtar af áfengi hafa oft góð og gagnleg áhrif á sjúkl- inga, sem þjást af mikilli óró og hitasótt, vellíðunin eykst og sorglegar hugsanir deyfast. Pað yrði of langt mál, ef ég færi að rita um áhrif vínnautn-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.