Eimreiðin - 01.09.1914, Side 42
arinnar á berklaveiki og upptök hennar, áhrifin á upptök hinna
ýmsu tegunda geðveikinnar og á dauðlegleikahlutfallið
Pó skal ég drepa á einstök atriði.
I Danmörku er drukkið sex sinnum meira af áfengi árlega en
í Noregi, en þó sýna skýrslur beggja landanna frá síðustu árum,
að útbreiðsla berklaveikinnar í Noregi er nú eins mikil eða jafnvel
meiri en í Danmörku. Má hiklaust fullyrða, að höfuðorsökin til
upptaka og útbreiðslu berklaveikinnar sé örbirgðin, óhreinlætið og
sambúðin við berklaveika sjúklinga, en ekki áfengisnautnin.
Aftur á móti hafa verið færðar miklar sannanir fyrir því, að
ofdrykkjan hafi skaðleg áhrif á afkvæmið (Alkohol Kimfordcer-
ver■), og af þeirri ástæðu hafi almenna hnignun eða úrættun (De-
generation) mannkynsins í för með sér, er aftur hefir áhrif á upp-
tök og útbreiðslu geðveikinnar, sem stöðugt virðist fara meira og
meira í vöxt í öllum siðuðum löndum. Pað er haft eftir Díógenes,
að hann hafi sagt við fábjána einn, er varð á vegi hans: »Hann
faðir þinn hefir víst verið fullur, þegar þú komst undir, piltur
minn!«
Menn gefa áfenginu að sök, og það oft með réttu, að það sé
frömuður ósiðsemi, lasta og glæpa og allrar óreglu. Eg
skal að eins geta um einstöku dæmi, er benda í gagnstæða átt.
Fyrir 2—3 árum var allsherjar verkfall í Svíþjóð, og var öllum
verkamönnum bannað með lagaboði að neyta áfengis, meðan á
verkfallinu stóð. Helztu afleiðingar þessa vínsölubanns voru þær,
að óveniulega mörg óskilgetin börn fæddust í Svíþjóð svo sem
8—9 mánuðum eftir verkfallið! Árið 1911 voru rúmlega 8500
manns teknir fastir á götum Kaupmannahafnar fyrir óreglu, drykkju-
skap, glæpi eða annan ósóma. En í Stavangri í Noregi, þar sem
fulikomið vínsölubann drotnar, voru 2300 menn teknir fastir sama
ár og af sömu orsökum. Kaupmannahöfn hefir yfir 500,00 íbúa,
en Stavangur ekki nema 40,000. Af þessu geta menn reiknað út,
hvor þessara bæja standi hærra í reglu og siðgæði. í Stavangri
hafa hérumbil fjórum sinnum fleiri að tiltölu verið handsamaðir en
í Khöfn á sama tímabili.
Eins og sjá má af framanrituðu, hefi ég fljótt yfir sögu farið.
Aðaláform mitt hefir verið að lýsa nokkrum áhrifum áfengisnautn-
arinnar, og þá einkum áhrifum ofdrykkjunnar á taugakerfið, lifrina