Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Page 50

Eimreiðin - 01.09.1914, Page 50
\ 206 Þetta dæmi hjá oss er alveg fágætt, til útlistunar á andlegu víðsýni og frumlegum hugsunarhætti! — — — — Er nú skilncíbur ríkis og kirkju í náinni framtíð kemur á dagskrá hér á landi, býst ég við, að menn muni ekki telja það ófyrirsynju, með þessi rök að baki, er ég hefi talið. Um þá aðra þýðingu, sem aðskilnaðurinn gæti haft, á trúarlífið í landinu (því til eflingar, að ætlan margra), skal ég ekki ræða hér; það liggur fyrir utan það sjónarmið, er ég lít frá. En við þetta, sem fram er tekið og út af fyrir sig er ærið nóg, bætist svo dstandib innan þjóbkirkjunnar að ýmsu leyti, sem gerir það enn meir óhjákvæmi- legt og bráðnauðsynlegt, að þessi bönd losni Kem ég þá að hinu meginatriði máls míns: Kenningarfrelsinu. Eg gát þess í upphafi, að þótt svo væri, að fult trúfrelsi væri í landinu (sem ekki er), gætu þó hugsast höft á kenningarfrelsi — fyrir menn, er hefðu bundist til kenninga á vissan veg. 46. gr. stjskr. gengur reyndar áreiðanlega út frá því, að hvorttveggja sé jafnleyfilegt: að fremja og kenna þau trúarbrögð, er menn kjósa, og svo er það einnig áreiðanlega yfirleitt; hér má boða alla trú, og er engum það meinað, svo ég viti (haldi hann sig innan þeirra takmarka, er nefnd stjskr.grein setur). En — eins og 45. gr. stjskr. takmarkar trúfrelsib svo stórvægilega sem sýnt hefir verið, eins, og ekki síbur, takmarkar hiín kenningarfrelsib; það er ekki nema sjálfsögð afleiðing, og meira að segja: annað er bldtt dfram óhugs- andi, meðan skipulag það helzt, er 45. gr. hefir sett. Hvaða kirkja, hvaða trúfélag, sem væri þjóðkirkja hér, mundi verða að hafa þá kennendur, er kendi lærdóma hennar; og hvert trúfélag hefir sína lærdóma, sína trúarjátning. Jafnvel þótt ekki sé um þjóðkirkju að ræða, gefur að skilja, að þeir, sem ráðast kennimenn þess eða hins trúarfélags (þó með frjálsum samningi sé) verða að flytja kenningar þess. Peir eru skuldbundnir til þess, takast það á hend- ur eo ipso með því að ganga í stöðuna. Þetta finst víst engum undarlegt; er ekki annað en það, sem á sér stað á öllum sviðum félagslífsíns: Gangi menn ab samningum, verba menn ab halda fdl Pað kirkjufélag, sem hér á landi er lögskipub fjóbkirkja samkv. 45- Rr- stjskr., er hin evangelisk-lúterska kirkja Pótt ekki væri manni það kunnugt, mætti þó örugt ganga út frá því, að sú kirkja hefði, eins og aðrar, einhverja tiltekna trúarlærdóma, er hún og hennar fólk héldi sig til. Og vel er það nú oss öllum vitanlegt, að trú- arlæxdómar ev.-lút. kirkjunnar eru næsta dkvebnir. Trúarrit — játn-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.