Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Side 56

Eimreiðin - 01.09.1914, Side 56
2 I 2 Charlottenborgarhöllinni, og þykir suraum listadómurum fult eins mikið koma til sumra hinna, sem engin verðlaun hlutu. En oss hefir þótt hlýða, að birta einmitt þá myndina, sem listaháskólinn hefir dæmt langbezta og sýnt meiri sæmd en nokkru öðru mál- verki síðan um 1870. V. G. Vörn .Hranna‘-dómarans í Skirni. Cujusvis hominis est errare, nullius} nisi insipientis, in tii'ore persci’erare. Þótt EIMR. sé það mjög á móti skapi, að fara í stælur eða að munnhöggvast út úr ritdómum hennar, verður þó í þetta skifti tæplega hjá því komist, að taka »Hranna«-dómarann í Skírni ofurlítið tii bæna. Ekki af því, að þess gerist í sjálfu sér veruleg þörf, jafnveiga- lítil og andmæli hans eru gegn ritdómi vorum, eða, réttara sagt, vörn hans fyrir dómi sínum um ágæti »Hranna«-kvæðanna, heldur af því, að hugsast getur, að einhveijir glæpist á að trúa stað'næfingum hans, af því maðurinn er doktor í heimspeki og kunnur rithöfundur, og sum- ir eru auk þess svo einfaldir, að halda, að hver sá sé kveðinn í kút- inn, sem ekki svarar, þótt þögn hans máske eingöngu stafi af því, að hann kann að þegja. Ekki getum vér þó átt við, að rekja þessa »apologíu« dr. Guðm. Finnbogasonar (því sá er maðurinn, þótt EIMR. hafi hingað til hlífst við að nefna nafnið) lið fyrir lið, því það yrði altof langt mál, heldur verðum vér að láta oss nægja, að grípa niður hér og þar, en láta hitt liggja óumtalað, sem mest er veikburða og veigaminst. Það er t. d. engin hætta á, að önnur eins vörn og þetta sannfæri nokkurn mann: »Orðin um höfuðborg Spánar: Með forna heimsvaldsins úrelta arf býr hún öltur, er geyma þess heilögu glóð, munu allir skilja, sem lesa þau með athygli«(!). Allir sjá, að þetta er það, sem kallað er á skólamáli: »að gefa sig upp á gat.« Og alveg sama máli er að gegna með þetta: >Ekki skal ég þrátta mikið um erindið úr kvæðinu »Dagurinn mikli«, sem dr. V. G. reynir að gera sér mikinn mat úr. Við vitum sjálfsagt báðir jafnmikið um það, hvernig guð er vaxinn eða búinn og hvernig lífsstörfum hans er háttað, og þar sem dr. V. G. hneykslast á höfuðfaldinum og beltinu, er bendi á, að skáldið hugsi sér guð sem konu, þá finst mér það ekki meiri goðgá, en ef skáldið hefði látið guð hafa harðan hatt og axlabönd, eins og okkur dr. V. G. Má og minna á það, sem Jafnhárr mælti forðum: »Eígi eru ásynjurnar óhelg- ari ok eigi megu þær minna«(l).

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.