Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Page 70

Eimreiðin - 01.09.1914, Page 70
22Ó forsendu. Að minsta kosti álítur Bergson, að einmitt þá, er vér ein- dregið og afdráttarlaust viljum eitthvað — oft án þess að geta gert oss sjálfum grein fyrir ástæðum — þá breytum vér samkvæmt insta eðli voru, í fullu samræmi við vort eigið »jeg« — og þá — en ella ekki — komi vor eigin fijálsi vilji í ljós. Höf. meinar í rauninni hið sama, þó hann geri sér ekki ljósa grein fyrir því. Þá er og skýring höf. á því, hvernig hann hugsi sér guð hafinn yfir tíma og breytileik, hafinn yfir það, að þurfa á »frjálsræði« að halda o: altaf breytandi samkvæmt sínu eigin eðli, í fylsta samræmi við og óumflýjanleg afleiðing af kenningu Biblíunnar um, að guð sé eilífur og alfullkominn. Margt fleira mætti til tína, er ber vott um góðar og frumlegar gáfur höf. Frásögnin er lipur og ljós og bókin því auðlesin. Og eng- um getur dulist það, að hún er tilraun góðrar og göfugrar sálar til að byggja nýja Bifröst af jörðu til hins fagra hugsjónalands, er hann eygir í hillingum »fyrir handan hafið«. B. Bl, JÓN ÓLAFSSON: ORÐABÓK ÍSLENZKRAR TUNGU að fornu og nýju. i. h. Rvík 1912. (Áskrifendaverð: kr. 3,50, lausasöluverð: kr' 5'°°)- Petta hefti hefir verið sent Eimr. svo seint, að ekki er ástæða til að rita mikið um það, eftir að svo margt og mikið hefir verið um það ritað í blöðum og tímaritum. Það er fráleitt af útgefendum, að senda ekki tímaritum bækur sínar til umgetningar fyr en 1 — 2 árum eftir að þær hafa komið út. Enginn getur annað sagt en að hér sé um þarft verk að ræða, jafnfrámunalega ófullkomin og orðsöfn vor yfir nýja málið eru. Hins- vegar var engin þörf á að taka fornmálið með, þar sem yfir það eru til ágætar orðabækur, sem ekki er hugsandi til að umbæta í slíkri bók sem þessari. Auðvitað má segja, að þar sem skýringar orðanna í þessum orðabókum séu á útlendum málum, þá væri gott að fá orða- bók yfir fornmálið með íslenzkum skýringum, sem allir geti notað, þótt eigi kunni þeir útlend mál. Eigi skal þessu neita; en þá ætti að semja sérstaka orðabók yfir fornmálið, en ekki hræra fornmálið og nýja málið saman í einn hrærigraut, eins og gert er í þessari bók. Það verður aldrei affarasælt, því afleiðingin verður, að menn lenda í ýmsum ógöngum, sem stafsetningin á þessari orðabók ber bezt vitni. Þar finnast t. d. ekki orð eins og háls, skáld, frjáls, álft, álfur, álfa- fólk o. s. frv., heldur er vegna fornmálsins ritað hals, skald, frjals, aljt, alfr, alfafolk o. s. frv. Þetta er fráleitt, þvi forntungan á engu meiri rétt á sér en hið lifandi nútíðarmál. Afleiðingin verður líka, að sum orð eru beinlínis rangfærð eða afbökuð, eins og t. d. alka, alp- ast o. s. frv. (fyrir álka, (=löng haka), álpast), sem samkvæmt stjörnu- merkinu eiga að vera ný orð, ekki hafa verið til í fommálinu og því aldrei haft þá mynd, sem tilfærð er í orðabókinni. Afleiðingin verð- ur því hrein og bein fölsun á nútíðarmáli voru í þágu fornmálsins, og er það stórgalli á bókinni. Höf. hefði átt að halda sér eingöngu við nútíðarmálið, íslenzka tungu eins og hún er töluð og rituð nú á dög- um, eða í hinum nýrri bókmentum vorum, en nota fornmálið að eins

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.