Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Síða 72

Eimreiðin - 01.09.1914, Síða 72
228 2. Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, I, 2. (Bókhlöðu- verð kr. 2,25, fyrir áskrifendur að allri bókinni kr. 1,50). 3. Ferðabók fJorv. Thoroddsens, I, 2 (kr. 1,50) og II (kr. 5,00). Skilvísir áskrifendur að allri bókinni fá hvert bindi fyrir kr. 3,00 til 1. júlí 1915 (öll 4 bindin fyrir kr. 12,00). 4. Orðakver, einkum til leiðbeiningar urn réttritun (en skýrir líka frá uppruna orða), eftir Finn Jónsson. (Innb. kr. 0,75). Á sumar af þessum bókum hefir EIMR. í huga að minnast frek- ar síðar. V. G. íslenzk hringsjá. LEXICON POL IICUM ANTIQUÆ LINGUÆ StP'i tNTRIONAI.IS. Ord- bog over det norsk-islandske Skjaldesprog. Forfattet af Sveinbjöm Egilsson. Foro- get og pány udgivet for Det Kongelige Nordiske Oldskriftselskab ved Finnur Jóns- son. 1. h. Khöfn 1913. (Verð 4 kr.). Skáldamálsorðabók Svb. Egilssonar er nú orðin nálega hálfsextug að aldri (kom út 1860), og því engin furða, þótt hún taki nú að gerast úrelt að ýmsu leyti, jafnmikið ágætisrit og hún þó var á sínum tíma. Auk þess er hún löngu uppseld og afardýr, þá sjaldan brúkuð eintök af henni fást keypt. Pessi nýja dtgáfa verður því mörgum kærkominn gestur, og ekki síður fyrir það, að hún er umbætt og end- ursamin einmitt af þeim manni, sem mest allra ndlifandi manna hefir fengist við skýringar á hinum fornu skáldakvæðum og því hefir flest skilyrði til að gera hana sem bezt úr garði. í orðabók Sveinbjarnar voru allar orðaskýringar á latínu, en hér eru þær á dönsku, og mun mörgum nú á dögum koma það betur, þótt enn betra hefði máske verið, ef þær hefðu verið á einhverju heimsmáli, t. d. ensku- eða þýzku. Að leggja nokkurn dóm á slíka bók sem þe^sa, er ekki auðgert í fljótu bragði og látum vér oss því nægja, að lýsa ánægju vorri yfir útkomu hennar og benda lesendum Eimr. á hana. V. G. A. HEUSLER: DIE ANFÁNGE DER ISLÁNDISCHEN SAGA. (Sérpr. úr />Abhandlungen der Königl. Preuss. Akademie der Wissenschaften« 1913). Berlín 1914. Hann lætur skamt höggva á milli, hann próf. Heusler, að því er snertir nýjar rannsóknir á sögunum okkar fornu. Og ætíð er ánægja að lesa það, setn hann ritar, jafnglöggur og gagnrýninn og hann er. í þessari ritgerð tekur hann til at- hugunar hinar mismunandi kenningar um uppruna sagnrita vorra, og sýnir fram á> að margar af þessum kenningum hljóti að vera rangar. Hann álítur, að allflestar af sögum vorum hafi myndast smátt og smátt í munnlegri frásögn sögufróðra manna og verið nokkurnveginn fullburða, áður en þær voru færðar í letur. Er víst lítill vafi á, að hann hefir hér, sem oftar, einmitt hitt á hið rétta, og mundi mega styðja

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.