Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Page 36
3Ö
Þorv. Thoroddsen
jarðsegulmagn, jarðelda, jarðskjálfta o. fl.; af fimta bind-
inú eru aðeins til lítil brot. Kosmos náði mikilli hylli um
öll lönd og var þýddur á mörg tungumál; bók þessi hef-
ur lengi haft áhrif á unga menn, meðal annars á Bene-
dikt Gröndal og höfund þann, er þetta ritar, á námsár-
um þeirra.
Það sem helst dró Humboidt til Berlínar á elliárum
hans var vonin um að geta notið samvista við Vilhjálm
bróður sinn, sem hann unni mjög. Alexander var sjálfur
okvæntur, og hafði eigi að menn vita felt ástarhuga til
neinnar konu1); hann var allur í vísindunum og kvaðst
aldrei hafa haft tíma til að hugsa um giftingu. En hann
mun þó hafa fundið til einverunnar og varð mjög elskur
að heimili bróður síns. Wilhelm v. Humboldt hafði þá
látið af embættum og bjk) á ættarleifð þeirra höllinni
Tegel hjá Berlin, þar hafði hann safnað að sjer miklu af
listaverkum og var þar hið prýðilegasta höfðingjasetur.
Alexander dvaldi eins oft hjá bróður sínum eins og hann
gat, en hirðskyldur hans í konungshöllunum í Berlín og
Potsdam voru honum mjög til tafar og alloft mjög þreyt-
andi bæði líkamlega og andlega. En brátt dró sorgar-
blæju yfir hið fagra heimilislíf í Tegel; hinn 26. mars
1829 dó hin gáfaða og ástúðlega mágkona Alexanders,
Karoline von Humboldt, eftir langar og miklar þjáningar;
tók Wilhelm v. Humboldt sjer þann missir mjög nærri
og hnignaði honum stöðugt eftir það uns hann andaðist
8. apríl 1835 til mikils harms fyrir bróður sinn*), sem oft
fann til þess síðar, hvað lífið var tómt og einmanalegt,
þó hann reyndi að kæfa sorgir sínar með stöðugri vinnu;
hann stóð þó jafnan í ástúðlegu sambandi við 3 bróður-
J) I Heljarslóðarorustu orðar Ben. Gröndal þetta svo: »þá (1859)
dó Alexander Humboldt í Berlin, hann var aldrei við kvennmann kendur
og eru það fádæmi í vorri tíð«. Al. v. Humboldt safnaði síðar
ritum bróður síns ogf paf þau út.